Hlutafé í íslenska sjávarlíftæknifyrirtækinu Unbroken ehf. hefur verið aukið um hálfan milljarð króna til að efla alþjóðlega markaðssetningu á fæðubótarefninu Unbroken. Virði félagsins í viðskiptunum er 7,5 milljarðar og horfir það til skráningar innan fárra ára.
Steinar Kristjánsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Unbroken, segir fjármögnunina mikilvægan áfanga í að efla fyrirtækið á heimsvísu. „Við horfum til þess að styrkja núverandi stöðu okkar í Bandaríkjunum, Evrópu, Mið-Austurlöndum og fyrir markaðsátak í Asíu,“ segir Steinar í tilkynningu.
Unbroken-fæðubótarefnið hefur verið selt til yfir 40 landa í erlendum vefverslunum og er framleitt í eigin verksmiðju í Noregi.
Runólfur V. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur, sem er stærsti eigandinn, segir í tilkynningunni að markmiðið sé að hlúa að nýsköpun og auka arðsemi og ávinning af sjávarfangi.
„Fjárfestingin hefur gefið ÚR tækifæri til að víkka út starfsemi sína. Félagið hefur öðlast nýja reynslu og þekkingu á sviði líftækni sem hjálpar okkur að hámarka virði afurða okkar.“
Fyrirtækið Unbroken var stofnað árið 2018 og hefur veltan að jafnaði tvöfaldast milli ára. Unbroken-fæðubótarefnið byggist á áralöngum rannsóknum og þróunarvinnu. Það veitir mjög hraða vöðvanæringu úr 100% niðurbrotnu fersku hágæðaprótíni samkvæmt tilkynningunni. Unbroken inniheldur meðal annars 25 amínósýrur í frjálsu formi sem nýtast vöðvum líkamans strax, mikið magn af B12-vítamíni, sink og selen.
Steinar segir fjölda íþróttamanna á öllum getustigum víða um heim nýta sér Unbroken enda sé um að ræða eina hröðustu vöðvanæringu sem völ er á.