Netverslun erlendis aukist um 92% milli ára

Verslun landsmanna er í auknum mæli að færast frá hefðbundnum …
Verslun landsmanna er í auknum mæli að færast frá hefðbundnum verslunum yfir í netheima. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslendingar hafa eytt ríflega 27 milljörðum króna í erlendar netverslanir það sem af er ári. Þetta er veruleg aukning frá 19 milljörðum á sama tímabili í fyrra. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar (RSV).

Þar segir að haldi þessi þróun áfram megi gera ráð fyrir að heildarverslun Íslendinga í erlendum netverslunum nái hátt í 44 milljörðum króna á þessu ári. Til að setja tölurnar í samhengi nam heildarkortavelta erlendra ferðamanna á Íslandi í júlí tæpum 48 milljörðum króna, samkvæmt Seðlabanka Íslands.

Í september nam netverslun Íslendinga í erlendum netverslunum 4,34 milljörðum króna, sem er 14% aukning frá ágúst sl. sem einnig var met mánuður. Miðað við september í fyrra hefur erlend netverslun aukist um 92%.

Tveir milljarðar í netverslun frá Eistlandi

Í síðasta mánuði birti RSV frétt um aukna netverslun frá Eistlandi, þar sem mánaðarlegt meðaltal hafði farið úr 5,9 milljónum króna í 850 milljónir króna.

Sú aukning hefur nú vaxið enn meira, þar sem netverslun frá Eistlandi rúmum 2 milljörðum króna í september, eða yfir 45% af heildarnetverslun Íslendinga erlendis þann mánuðinn.

Fram kemur að RSV telji að hluta af aukningunni megi rekja til opnunar dreifingamiðstöðva kínverskra stórfyrirtækja í Eistlandi. Til að mynda eru að berast sendingar af Ali Express og Temu frá Eistlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK