Mesta stýrivaxtalækkunin í áratug

Sænski seðlabankastjórinn Erik Thedeen er hann kynnti stýrivaxtaákvörðunina í morgun.
Sænski seðlabankastjórinn Erik Thedeen er hann kynnti stýrivaxtaákvörðunina í morgun. AFP/Anders Wiklund

Seðlabanki Svíþjóðar hefur ákvarðað um mestu stýrivaxtalækkun sína frá árinu 2014.

Stýrivextirnir voru í morgun lækkaðir um 0,5 prósentustig, sem er tvöfalt meira en hefur verið, og eru þeir núna 2,75%.

Þetta er fjórða stýrivaxtalækkun bankans á þessu ári.

Ársverðbólga fór niður í 1,6% í Svíþjóð í september, úr 1,9% í júlí, og miðað við bráðabirgðatölur hélst hún eins í október.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK