Nýir stjórnendur og aukið fjármagn hjá Wisefish

Yngvi Halldórsson, Stacey Katz og Siggeir Örn Steinþórsson.
Yngvi Halldórsson, Stacey Katz og Siggeir Örn Steinþórsson. Samsett mynd

Wisefish, hugbúnaðarhús í viðskiptalausnum fyrir sjávarútveg, hefur ráðið þrjá nýja stjórnendur í lykilstöður í félaginu.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Yngvi Halldórsson hefur verið ráðinn sem forstjóri félagsins, Stacey Katz hefur tekið við stöðu fjármálastjóra og Siggeir Örn Steinþórsson verður framkvæmdastjóri vörustýringar, sölu og markaðsmála.

Fjárfestingarfélagið Adira, sem er aðaleigandi félagsins, hefur samhliða skuldbundið sig til að setja inn nýtt fjármagn til að styðja við enn frekari vöxt.

Fram kemur að hugbúnaðarlausnir Wisefish hafi verið í stöðugri þróun í yfir tvo áratugi og séu nýttar í mörgum af stærstu sjávarútvegsfélögum Íslands sem og í fjölda annara landa út um allan heim. Wisefish lausnin sé heildstæð viðskiptalausn fyrir flóknar virðiskeðjur í sjávarútvegi með fullum rekjanleika sem geri fyrirtækjum kleift að auka framleiðni, hagkvæmni og sjálfbærni.

Með áframhaldandi fjárfestingu er Adira sagt sýna trú sína á félaginu, nýjum stjórnendum og
framúrskarandi starfsmönnum félagsins.

Reynslumiklir stjórnendur

„Fyrir hönd Adira þá erum við mjög ánægð að fá reynslumikla stjórnendur í þeim Yngva, Stacey og Siggeir til liðs við það frábæra starfsfólk og stjórnendur sem nú þegar eru hjá Wisefish. Lausnir félagsins hafa fylgt íslenskum sjávarútvegi í tugi ára og hefur mikið af starfsfólki félagsins unnið að lausnunum frá upphafi og er því hafsjór af þekkingu í bæði sjávarútvegi og hugbúnaði í félaginu.

Félagið hefur á undanförnum árum fjárfest í að þróa lausnir félagsins þannig að hægt sé að selja þær sem hugbúnað sem þjónustu (SaaS). Wisefish kerfið er lykilstoð í rekstri viðskiptavina okkar og samhliða því hafa kröfur um áreiðanlegan rekjanleika í matvælaframleiðslu aukist sem hefur gert það að verkum að markaðsþörfin fyrir Wisefish er mikil. Með aukinni áherslu, sterkari markaðsnálgun á erlenda markaði og umbætum í rekstri, höfum við miklar væntingar til félagsins á komandi árum,” er haft eftir Valgarði Má Valgarðssyni, stjórnarformanni Wisefish.

Yngvi Halldórsson ráðinn forstjóri

Yngvi Halldórsson, nýráðinn forstjóri Wisefish.
Yngvi Halldórsson, nýráðinn forstjóri Wisefish. Ljósmynd/Aðsend

Yngvi kynntist Wisefish félaginu fyrst sem stjórnarmaður en tók síðar við sem tímabundinn forstjóri í apríl 2024. Yngvi starfaði síðast hjá Sýn frá árinu 2019. Síðast sem forstjóri Sýnar en þar áður rekstrarstjóri (COO) en Yngvi var einnig í vara- og aðalstjórn þar frá 2014. Yngvi starfaði einnig hjá Össur í ýmsum stjórnunarstöðum í 10 ár og áður en hann fór til Sýnar sem meðeigandi í Alfa Framtak. Yngvi er með B.S. gráðu í Viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Stacey Katz nýr fjármálastjóri

Stacey Katz, nýráðin fjármálastjóri Wisefish.
Stacey Katz, nýráðin fjármálastjóri Wisefish. Ljósmynd/Aðsend

Stacey hefur starfað síðastliðin 10 ár hjá Marel í ýmsum stjórnunarstöðum en nú síðast sem fjármálastjóri. Stacey er með B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Cornell University og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Stacey er löggiltur endurskoðandi frá New York og er með langa reynslu sem bæði endurskoðandi og ráðgjafi í bæði Bandaríkjunum og Íslandi í ýmsum starfsgreinum.


Siggeir Örn Steinþórsson nýr í framkvæmdastjórastjórn

Siggeir Örn Steinþórsson framkvæmdastjóri vörustýringar, sölu og markaðsmála.
Siggeir Örn Steinþórsson framkvæmdastjóri vörustýringar, sölu og markaðsmála. Ljósmynd/Aðsend

Siggeir Örn Steinþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri vörustýringar, sölu og markaðsmála. Siggeir hefur varið síðustu 12 árum sem leiðtogi í vöruþróun og leitt umbreytingar í ýmsum starfsgreinum og löndum fyrir Novo Nordisk, Arion Banka, Marel og nú síðast Sýn sem forstöðumaður vörustýringar og upplifun viðskiptavina. Siggeir er með MSc gráðu í verkfræði frá Technical University of Denmark.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK