Nýjar inn í eigendahóp Attentus

Ástríður Þórey og Helga Lára hafa bæst við eigendahóp Attentus.
Ástríður Þórey og Helga Lára hafa bæst við eigendahóp Attentus. Samsett mynd

Ástríður Þórey Jónsdóttir og Helga Lára Haarde hafa bæst í eigendahóp Attentus. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Jafnfram kemur fram að fyrirtækið hafi komið á fót nýrri sálfræðiþjónustu sem miðuð er að atvinnulífinu.

Með sálfræðiþjónustunni gefst vinnustöðum kostur á sálfræðiþjónustu fyrir starfsfólk sitt þar sem stutt bið eftir þjónustu er tryggð. Þannig vill Attentus mæta vaxandi eftirspurn eftir sálfræðiþjónustu á vinnustöðum en fjölmargir vinnustaðir eru farnir að forgangsraða andlegri heilsu starfsfólks með meira afgerandi hætti.

Auk hefðbundinna meðferðarviðtala munu sálfræðingar einnig sinna handleiðslu við stjórnendur, sáttamiðlun og samskiptavanda á vinnustöðum, auk þess að bjóða upp sálfélagslegt áhættumat á vinnustöðum auk ráðgjafar og úttekta í EKKO-málum.

Reynslumiklar konur

Ástríður Þórey hefur starfað hjá Attentus frá árinu 2022. Fram kemur að hún búi yfir mikilli þekkingu á stjórnsýslurétti, félagarétti, vinnurétti og mannauðsmálum. Hjá Attentus hafi hún sinnt lögfræðiverkefnum á sviði vinnuréttar, ráðgjöf á sviði ráðninga og starfsloka, erfiðum starfsmannamálum, EKKO-úttektum og mannauðsráðgjöf.

Hún er lögfræðingur að mennt, en hún lauk lagaprófi frá Háskólanum í Reykjavík og er með BA-gráðu í frönsku frá Háskóla Íslands.

Helga Lára hefur starfað hjá Attentus frá árinu 2017. Fram kemur að hún hafi sinnt mannauðsráðgjöf, viðhorfskönnunum, stjórnendamælingum, erfiðum starfsmannamálum, EKKO-ráðgjöf og sálfræðiráðgjöf. Auk þess hafi Helga haldið fjölda fyrirlestra um mannauðsmál og sálfræðitengd málefni.

Helga er klínískur sálfræðingur með MS-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Helga vinnur helst með vanda á borð við kulnun, fullkomnunaráráttu, kvíða, lágt sjálfsmat, félagskvíða og samskiptavanda. Hún hefur einnig MS-gráðu í félags- og vinnusálfræði frá Háskóla Íslands ásamt BS-gráðu í sálfræði.

Fengur fyrir Attentus

„Það er mikill fengur fyrir Attentus af því að fá Ástríði og Helgu inn í hóp eigenda félagsins. Ástríður mun leiða lögfræðiteymi Attentus og Helga mun leiða nýja sálfræðiþjónustu Attentus sem miðuð er að atvinnulífinu og mun nýtast vel við áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins. Við þökkum Ingu Björgu fyrir þátttöku í stofnun Attentus og samstarfið síðustu 17 árin. Við óskum henni góðs gengis á nýjum vettvangi,“ er haft eftir Ingunni Björk Vilhjálmsdóttur, stjórnarformanni Attentus í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK