Þrír nýir starfsmenn til Reita

Brynjar Þór Ólafsson, Sólrún Lovísa Sveinsdóttir og Aníta Auðunsdóttir.
Brynjar Þór Ólafsson, Sólrún Lovísa Sveinsdóttir og Aníta Auðunsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Brynjar Þór Ólafsson, Sólrún Lovísa Sveinsdóttir og Aníta Auðunsdóttir hafa verið ráðin til Reita. Sólrún hefur tekið við stöðu verkefnastjóra á þróunarsviði, Aníta sem lögfræðingur á lögfræðisviði og Brynjar sem verkefnastjóri viðhaldsverkefna. Þau hafa þegar hafið störf. 

Sólrún er með víðtæka reynslu af stýringu þróunar-, hönnunar og umbreytingarverkefna, m.a. hjá fasteignaþjónustu Landspítalans, hjá Nýjum Landspítala, Verkís verkfræðistofu og fyrir Mannverk. Sólrún er með MSc-gráðu í byggingaverkfræði, BSc-gráðu í tæknifræði, diplómu í opinberri stjórnsýslu auk alþjóðlegrar IPMA-vottunar í verkefnastjórnun. 

Sem verkefnastjóri á þróunarsviði heldur Sólrún til að mynda utan um verkefnastýringu þróunar- og umbreytingarverkefna en hlutverk þróunarsviðs er að stýra fasteignaþróunarverkefnum og styðja við vöxt og viðgang félagsins sem leiðandi afl í uppbyggingu innviða samfélagsins.  

Brynjar kemur til Reita frá Steypustöðinni þar sem hann starfaði sem verkefnastjóri reisinga á forsteyptum einingum. Brynjar er með BSc-gráðu í byggingafræði, hefur mikla reynslu af áætlunargerð og kostnaðaráætlun ásamt áratuga reynslu af störfum sem múrarameistari.  

Sem verkefnastjóri viðhaldsverkefna hefur Brynjar umsjón með viðhaldi fasteignasafns Reita ásamt framkvæmdum sem snúa að því að aðlaga húsnæði að þörfum leigutaka og auka verðgildi þess.  

Aníta bætist við lögfræðisvið Reita. Hún kemur til fyrirtækisins frá lögfræðistofunni MAGNA lögmenn, þar sem hún starfaði síðastliðin fimm ár og öðlaðist víðtæka þekkingu og reynslu á sviði lögfræði og ráðgjafar. Aníta er með ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og BA-gráðu frá sama skóla. Þá öðlaðist hún málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2021.  

„Reitir eru framsýnt fasteignafélag. Við höfum markað okkur nýja vaxtastefnu með fjölþættari verkefnum og nýjum eignaflokkum. Sú vegferð sem fram undan er þegar við skilgreinum Reiti sem þekkingar og þróunarfyrirtæki hvílir á framúrskarandi starfsfólki. Árið hefur verið tíðindamikið og ótal mörg spennandi verkefni í kortunum og það er því mikill fengur að fá svona öflugt fólk til liðs við okkur. Ég býð Anítu, Brynjar og Sólrúnu hjartanlega velkomin til starfa,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.   

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK