Kínverjar vara við tollum Trumps

Tollamál. Kínverskir ríkismiðlar koma skilaboðum til Bandaríkjanna.
Tollamál. Kínverskir ríkismiðlar koma skilaboðum til Bandaríkjanna. AFP/Hector Retamal

Ríkisfjölmiðlar í Kína vöruðu Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, við því að loforð hans um að leggja viðbótartolla á kínverskar vörur gæti dregið þessi stærstu hagkerfi heims í tollastríð, með tilheyrandi efnahagslegum afleiðingum fyrir bæði ríkin.

Að sögn Reuters-fréttaveitunnar sagði Trump, sem mun taka við embætti 20. janúar nk., að hann hygðist leggja 10% umframtolla á allan innflutning frá Kína. Notaði Trump innflutning á efnum sem notuð eru til framleiðslu á fentanýl sem afsökun fyrir þessari hótun.

Trump hefur reyndar hótað því að leggja mun hærri tolla á kínverskar vörur til að vernda Bandaríkin og framleiðslu þar.

,,Afsökunin sem Trump hefur gefið til þess að réttlæta hótun sína um að leggja viðbótartolla á innflutning frá Kína er í besta falli langsótt. Það eru engir sigurvegarar í tollastríðum og ef Bandaríkin halda áfram að beita tollum sem vopnum í efnahagslegum tilgangi munu allir tapa,“ kemur fram í ríkismiðlinum China Daily.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka