Gullæði grípur seðlabanka víða um heim

Síðastliðinn tvö ár hafa seðlabankar aukið forða sinn af gulli.
Síðastliðinn tvö ár hafa seðlabankar aukið forða sinn af gulli. AFP/Yasser Al-Zayyat

Gullverð fór í fyrsta sinn á mörkuðum í 2.800 dollara únsan (um 390 þúsund ISK) í lok október. Þrátt fyrir að gullverð hafi gefið aðeins eftir að undanförnu er það samt, að sögn Þórðar Gunnarssonar hagfræðings, enn hátt í sögulegu samhengi.

„Gullverð hefur aðeins gefið eftir frá því að únsan fór í 2.800 dali. Engu að síður stendur hún í ríflega 2.600 dollurum, sem er mjög hátt verð í sögulegu samhengi. Þrátt fyrir að verð hafi lækkað undanfarnar vikur hefur gullverð hækkað um 30% á þessu ári,“ segir Þórður í samtali við ViðskiptaMoggann.

Hann bendir á að öll viðskipti á hrávörumörkuðum fari fram í dollurum, því hafi styrking gjaldmiðilsins haft áhrif til lækkunar.

Spurður hvað valdi þessum miklu verðhækkunum á gulli segir Þórður að það sé einkum vegna seðlabanka víða um heim sem séu að sópa upp gulli.

„Síðastliðinn tvö ár hafa seðlabankar komið sterkir inn á kauphliðina á þessum markaði. Það byggist á gögnum frá alþjóðlegum samtökum sem framkvæmdu könnun á meðal seðlabanka. Niðurstöður sýna að líklegt sé að seðlabankar muni halda áfram að kaupa gull í stórum stíl og auka þannig við gullforða sinn,“ útskýrir Þórður.

Hann segir það enga tilviljun að bankar og fjárfestar séu farnir að kaupa gull í miklum mæli.

„Þeir sem stýra peningamálum um allan heim eru byrjaðir að auka við gullforða sinn eftir að verðbólgan fór á flug um mitt ár 2022. Það sem styður líka við gullverð eru væntingar um vaxtalækkun í Bandaríkjunum. Þegar vextir lækka styður það við hrávöruverð og þar er gull ekki undanskilið,“ útskýrir Þórður.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK