Kaupfélag Eyfirðinga (KEA) hefur fest kaup á eignasafni íbúðafélagsins Ívera (áður Heimstaden) á Akureyri.
Um er að ræða um 120 íbúðir og kaupverð þeirra liðlega 5 milljarðar króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íveru.
Ívera hefur áform um tvöföldun á eignasafni sínu sem í dag telur um 1.600 íbúðir. Sala eignanna á Akureyri er liður í endurskipulagningu á eignasafni félagsins segir í tilkynningu.
Viðskiptin munu ekki hafa neikvæð áhrif á núverandi leigutaka og lögðu Ívera og KEA áherslu á áframhaldandi húsnæðisöryggi fyrir leigutaka íbúðanna að því er segir í tilkynningu.
Stefna KEA er að reka íbúðirnar til langs tíma en viðskiptin marka brotthvarf Íveru af íbúðamarkaði á Akureyri en félagið stefnir ekki á frekari umsvif þar í náinni framtíð.
Stefnt er að því að afhenda eignirnar fyrir jól.
Egill Lúðvíksson, forstjóri Íveru, og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, undirrituðu kaupsamninginn fyrr í dag.
Haft er eftir Agli í tilkynningu sem segir:
„Það er ánægjulegt að skerpa á rekstri félagsins með þessari endurskipulagningu í okkar rekstri og horfa á eftir eignunum á Akureyri í hendur trausts aðila með metnaðarfull langtímaáform.
Eignirnar eru vel staðsettar og hafa verið eftirsóttar á leigumarkaði. KEA er rótgróinn fjárfestir í sínu nærumhverfi og gildi þeirra fara vel saman við okkar. Ég trúi að leigutakarnir verði ánægðir með þessi viðskipti.“
Þá er haft eftir Halldóri í tilkynningu sem segir:
„Þessi kaup eru fyrsta skref KEA inn á íbúðaleigumarkaðinn hér á nærsvæði okkar en í gegnum dótturfélagið Skálabrún hyggst KEA byggja upp til lengri tíma safn íbúða til almennrar útleigu.
Það er ekkert stórt sérhæft og staðbundið félag um leigu íbúða á almennum markaði hér á þessu svæði og við erum að breyta þeirri umgjörð með þessum kaupum. Það hefur skort félag eins og þetta á þessum markaði og þessi fjárfesting muni til lengri tíma styrkja almennan íbúðaleigumarkað á svæðinu.
Þetta er ein stærsta fjárfesting KEA í nokkurn tíma en hún er liður í þeim breyttu áherslum hjá félaginu að auka verulega vægi fasteignatengdra verkefna á efnahagsreikningi sínum ásamt því að fækka og stækka þau verkefni sem eru á höndum félagsins. Ásamt því að reka íbúðaleigufélag stefnum við á að taka þátt í þróunarverkefnum ýmiss konar á fasteigna- og íbúðamarkaði á okkar nærsvæði.“