PLAIO semur við alþjóðlegt fyrirtæki

Jóhann Guðbjargarson, stofnandi og framkvæmdastjóri, Ólafur Pálsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og …
Jóhann Guðbjargarson, stofnandi og framkvæmdastjóri, Ólafur Pálsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og Ragnheiður Theodórsdóttir, sérfræðingur í viðskiptaþróun. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið PLAIO, sem þróar lausn með gervigreind fyrir lyfja- og líftæknifyrirtæki, hefur gert samstarfssamning við alþjóðlega lyfjafyrirtækið Eisai, sem mun nota hugbúnaðarlausn PLAIO til að skala upp framleiðslu á lyfjum fyrirtækisins.

„Markmiðið með samstarfinu er að byggja upp sjálfbæra og trausta birgðakeðju til að mæta vaxandi eftirspurn eftir lyfjum Eisai út um allan heim. Hugbúnaðarlausn PLAIO sjálfvirknivæðir aðfangakeðjur með það að markmiði að hagræða í rekstri og hámarka nýtingu aðfanga. Lausnin er sérstaklega hönnuð til að mæta þörfum lyfjaiðnaðarins og er einföld í uppsetningu, sem þýðir minni tími og kostnaður viðskiptavina við innleiðingu,“ segir í tilkynningu.

Hjá Eisai vinna yfir 10 þúsund manns og er fyrirtækið með starfsstöðvar úti um allan heim.

„Það er stórt skref fyrir okkur að fá inn þetta öfluga fyrirtæki og þetta flýtir innreið okkar á Bandaríkjamarkað. Eisai er mjög þekkt lyfjafyrirtæki og framleiðir eitt eftirsóttasta lyfið í heiminum í dag,” segir Ólafur Pálsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá PLAIO, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK