Laxeldisfyrirtækið Arnarlax á Bíldudal náði þeim merka áfanga í síðustu viku að framleiða yfir 100 þúsund tonn af laxi frá stofnun fyrirtækisins árið 2010, en það er ígildi 500 milljón máltíða.
Í tilkynningu frá Arnarlaxi segir að fyrirtækið hafi vaxið hratt og aukið framleiðslugetu sína á sama tíma og gæðum hefuer verið viðhaldið og umhverfisáhrif framleiðslunnar lágmörkuð.
Aukin framleiðslugeta fyrirtæksins hafi verið studd á markvissan hátt með fjárfestingum í innviðum, tækni og nýsköpun til að tryggja ábyrgar og sjálfbærar framleiðsluaðferðir.
Framleiðslan hefur aukist ár frá ári, en hún nam 6.100 tonnum árið 2016 og fór hæst í 17.800 tonn árið 2023, sem jafngidlir að meðaltali um 11.100 tonn á hverju ári. Framleiðslumöguleikar fyrirtækisins eru allt að 26.000 tonn á ári en fyrirtækið stefnir á áframhaldandi stækkun byggt á sjálfbærum framleiðsluaðferðum.
„Þetta er mikilvægur og ánægjulegur áfangi í 15 ára vegferð fyrirtæksins. Þessi árangur er afrakstur mikillar vinnu starfsfólks okkar í öllum deildum fyrirtækisins. Hvert einasta tonn staðfestir framtíðarsýn og skuldbindingu okkar við samfélagið og umhverfið. Við erum ekki aðeins að horfa á magn framleiðslunnar, heldur einnig hvernig — þannig að aðferðir okkar stuðli að lágmarksáhrifum á umhverfið.“ er haft eftir Birni Hembre, forstjóra Arnarlax í tilkynningunni.
Fram kemur að markmið fyrirtækisins hafi ávallt verið að stuðla að atvinnuuppbyggingu á sunnanverðum Vestfjörðum. Samhliða aukinni stækkun fyrirtækisins hafi starfsfólki, verktökum, þjónustuaðilum og afleiddum störfum fjölgað á svæðinu.
Þannig hafi starfsemin haft jákvæð efnahagsáhrif á svæðinu en meðalfjöldi starfsfólks hjá Arnarlaxi eru 184 og um 70% þeirra búa í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.
Þá hafi mikil þekkingaruppbygging átt sér stað á svæðinu en rík áhersla hafi verið á að ráða sérfræðinga til starfa á öllum sviðum fyrirtækisins. Sérfræðiþekking starfsmanna vegi þungt í að viðhalda stöðugri framleiðslu og vexti sem felst í því að innleiða og fylgja eftir mótvægisaðgerðum til að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfi og vistkerfi sjávar.
Til að tryggja gæði og framleiðni hafi fyrirtækið fjárfest í rannsóknum og þróun, innleitt nýstárlegar lausnir eins og Hybrid vinnubáta og fóðurpramma, landtenginu við fóðurpramma til að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif.
„Laxeldi er mikilvæg atvinnugrein á Vestfjörðum og jafnframt ein af mikilvægustu atvinnugreinum Íslands og nam útflutningsverðmæti greinarinnar um 40 milljörðum króna árið 2023 eða 4,3% af vöruútflutningi þjóðarinnar og stefnir í um 5% árið 2024. Enn er rúm til vaxtar í greininni en til þess að hámarka möguleika laxeldis fyrir Ísland þarf að vera skýr laga rammi, samkeppnishæfir skattar og vilji stjórnvalda til að nýta þessa auðlind á sjálfbæran hátt. Óvissan sem greinin býr við er ekki góð fyrir neinn. Möguleikarnir eru miklir á Íslandi og útflutningstekjur af laxi geta orðið meiri en af þorskinum þegar fram líða stundir.“ segir Björn enn fremur í tilkynningunni.