Samkeppniseftirlitið vekur athygli á að samkeppnislög banni samráð á milli fyrirtækja sem hefur það að markmiði eða af því leiðir að komið sé í veg fyrir samkeppni eða hún takmörkuð.
Til að mynda gæti verið ólöglegt fyrir keppinauta að ræða saman um væntanlegar verðhækkanir eða miðla slíkum upplýsingum sín á milli í fjölmiðlum.
Brot á samkeppnislögum geti varðað ströngum viðurlögum og að fyrirtæki og hagsmunasamtök megi vænta þess að stofnunin taki vísbendingar um háttsemi sem hamli samkeppni „til alvarlegrar athugunar“.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu í tilefni af þátttöku keppinauta og hagsmunasamtaka í opinberri umræðu um verðhækkanir framundan.
„Nefna má sem dæmi að starfsmenn tveggja fyrirtækja sem eru keppinautar í framleiðslu tiltekins vöruflokks mættu saman í umræðuþátt og ræddu verðhækkanir. Í samtali þeirra voru færð fyrir því rök að hækkandi hráefnisverð hefði leitt til hækkunar á umræddum vörum til neytenda og boðuðu þeir jafnframt að frekari verðhækkanir væru í farvatninu,“ segir í tilkynningunni án þess þó að fyrirtækin séu nefnd á nafn.
„Í öðru tilviki voru tekin viðtöl við stjórnendur dagvörukeðja og haft eftir þeim að verulegar hækkanir væru framundan.“
Í tilkynningunni segir einnig að nýleg dæmi séu um að forsvarsmenn hagsmunasamtaka fyrirtækja hafi tjáð sig opinberlega um verðhækkanir á nauðsynjavörum og eftir atvikum fært rök fyrir nauðsyn slíkra hækkana.
„Af þessu tilefni er rétt að minna á að samkeppnislög banna hvers konar samráð milli fyrirtækja sem hefur það að markmiði eða af því leiðir að komið sé í veg fyrir samkeppni eða hún takmörkuð. Það getur til dæmis talist til ólögmæts samráðs ef keppinautar ræða saman um væntanlegar verðhækkanir eða miðla upplýsingum um það hver til annars, þ.á m. í opinberri umræðu, t.d. fjölmiðlum,“ segir í tilkynningunni.
Þá er tekið fram að til þess að samkeppni þrífist þurfi fyrirtæki að búa við ákveðna óvissu um hvernig keppinautar þess muni haga sér.
„Í samkeppnisumhverfi leita fyrirtæki mismunandi leiða til að bjóða vörur eða þjónustu á sem hagstæðustu verði, s.s. að hagræða í rekstri, leita betri kjara hjá öðrum birgjum eða draga úr arðgreiðslum. Búi fyrirtæki hins vegar yfir vitneskju um viðbrögð keppinautanna dregur úr hvötum þeirra til að keppa og halda verði niðri.“
Þá segir að fyrirtæki og hagsmunasamtök megi búast við að Samkeppniseftirlitið taki vísbendingar um háttsemi sem hamli samkeppni líkt og hér hefur verið lýst „til alvarlegrar athugunar“.
„Brot á samkeppnislögum geta varðað ströngum viðurlögum.“
Telur Samkeppniseftirlitið mikilvægt að brýna eftirfarandi fyrir fyrirtækjum og samtökum þeirra í tilkynningunni: