Svíar lækka stýrivexti í fimmta sinn á árinu

Frá Svíþjóð. Mynd úr safni.
Frá Svíþjóð. Mynd úr safni. AFP/Jonathan Nackstrand

Seðlabanki Svíþjóðar tilkynnti í dag um 0,25 prósentustiga lækkun á stýrivöxtum og standa þeir nú í 2,5 prósentum.

Þetta er fimmta stýrivaxtalækkun sænska seðlabankans á árinu en flestir sérfræðingar höfðu spáð því að stýrivextirnir yrðu lækkaðir um 0,25 stig. Frá því í maí á þessu ári hafa stýrivextir verið lækkaðir úr 4% í 2,5%.

„Ef efnahags- og verðbólguhorfur ganga eftir gætu stýrivextir lækkað enn á fyrri hluta árs 2025,“ segir í tilkynningu sænska seðlabankans.

Þess má geta að stýrivextir á Íslandi eru 8,5%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK