Framtakssjóðurinn SÍA IV kaupir meirihluta í ISNIC

Ólöf Pétursdóttir, sjóðstjóri SÍA IV.
Ólöf Pétursdóttir, sjóðstjóri SÍA IV. Ljósmynd/Aðsend

Samkomulag hefur náðst á milli hluthafa Internets á Íslandi hf. (ISNIC) og SÍA IV slhf., framtakssjóðs í rekstri Stefnis og að meirihluta í eigu lífeyrissjóða, um kaup á meirihluta hlutafjár ISNIC. Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

ISNIC er skráningarstofa landshöfuðlénsins .is og sinnir rekstri þess auk þess að reka miðlæga internettengipunktinn RIX. ISNIC hefur skráð .is lén frá árinu 1988 og eru skráð .is lén í dag yfir 94 þúsund talsins, en rétthafar lénanna eru bæði innlendir og erlendir aðilar.

Ólöf Pétursdóttir, sjóðstjóri SÍA IV:

„Við hlökkum til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins og .is lénsins með því góða starfsfólki sem starfar hjá félaginu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK