Íslandsbanki verði seldur á árinu

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að ríkið muni …
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að ríkið muni selja hlut sinn í Íslandsbanka á þessu ári. mbl.is/Karítas

Hlutur íslenska ríkisins í Íslandsbanka verður seldur á þessu ári. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá þessu í Silfrinu á Rúv í kvöld. 

Íslenska ríkið á 42,5 prósenta hlut í bankanum. 

Selja átti hlut ríkisins í bankanum á þessu og síðasta ári en því var frestað í október. 

Miðað við marksverðmæti Íslandsbanka er hlutur ríkisins um 100 milljarða króna virði að því er segir í frétt Rúv. 

Daði Már sagði að grunnur að ferli fyrir sölu bankans væri kominn langt á veg og að það ferli verði kynnt í þinginu í vor. 

Aðspurður sagði hann engin áform um að selja Landsbankann.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK