Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins fer fram í dag milli kl. 8:30-10:00 í Silfurbergi, Hörpu.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan.
„Skattadagurinn hefur verið haldinn árlega frá árinu 2004. Mjög góð þátttaka hefur verið á viðburðinn og ljóst er að Skattadagurinn hefur fest sig í sessi hjá einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja hlýða á það nýjasta sem er að gerast í skattamálum hverju sinni,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.
Heiðrún Björk Gísladóttir, lögmaður á málefnasviði Samtaka atvinnulífsins, er fundarstjóri.