Klappir og ICR í samstarf

Guðmundur Sigbergsson, framkvæmdastjóri ICR, og Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa.
Guðmundur Sigbergsson, framkvæmdastjóri ICR, og Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska fyrirtækið International Carbon Registry (ICR), sem rekur alþjóðlegt vottunarkerfi og kolefnisskrá, hefur skrifað undir samstarfssamning við hugbúnaðarfyrirtækið Klappir grænar lausnir.

Fram kemur í fréttatilkynningu félaganna að samstarfið byggi á að einfalda aðgengi að hágæða kolefniseiningum frá verkefnum um allan heim.

Hugbúnaðarlausnir Klappa gera fyrirtækjum kleift að uppfylla kröfur um upplýsingagjöf í sjálfbærni með skilvirkum og einföldum hætti. Kolefniseiningar ICR, innlendar sem erlendar, eru nú aðgengilegar úr hugbúnaði Klappa sem einfaldar fyrirtækjum að kolefnisjafna fyrir losun sinni og styðja við framtíðarbindingu kolefnis.

Samstarfið sé svar við aukinni eftirspurn eftir áhrifamiklum mótvægisaðgerðum í formi kolefniseininga, en samstarf Klappa og ICR styrkir fyrirtæki í að taka ábyrgð á eigin kolefnisspori í gegnum hugbúnað Klappa.

„Við hjá Klöppum teljum að tæknin sé lykillinn að mikilvægum umhverfisaðgerðum. Samstarfið við ICR gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum öflugt tæki til að stjórna eigin loftlagsáhrifum og stýra verkefnum sem munu styrkja sjálfbæra framtíð. Þetta er meira en bara samstarf, þetta snýst um að byggja upp úthald og sína gott fordæmi,“ segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa, í tilkynningunni.

Guðmundur Sigbergsson, framkvæmdastjóri ICR, segir „að samstarfið við Klappir geri okkur kleift að styrkja enn frekar stefnu okkar að bjóða upp á hágæða kolefniseiningar og gera þær aðgengilegar fyrirtækjum sem vilja taka ábyrgð á losun sinni og styðja við verkefni sem eru að takast á við loftslagsvána. Saman munum við styrkja fyrirtæki til að taka upplýstar og mikilvægar ákvarðanir um sjálfbærni þeirra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK