Spá óbreytt, 4,8% í janúar

Vaxtaákvörðun Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar bankans. Allar líkur …
Vaxtaákvörðun Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar bankans. Allar líkur eru á lækkun stýrivaxta á næsta fundi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Sam­kvæmt nýrri grein­ingu aðal­hag­fræðings Kviku banka, Haf­steins Hauks­son­ar, er gert ráð fyr­ir að vísi­tala neyslu­verðs lækki um 0,1% í janú­ar­mæl­ingu Hag­stof­unn­ar 30. janú­ar næst­kom­andi. Jafn­framt ger­ir Haf­steinn ráð fyr­ir að ár­sverðbólga hald­ist óbreytt í 4,8%.

Sam­kvæmt þessu yrði hlé á hjöðnun verðbólg­unn­ar sem skýrist einkum af ýms­um ein­skipt­is­hækk­un­um um ára­mót­in.

Í grein­ingu Haf­steins kem­ur hins veg­ar fram að lík­legt sé að verðbólga lækki mynd­ar­lega í fe­brú­ar og hjaðni áfram fram í apríl. Í spánni kem­ur fram að lækk­un verðbólgu gæti numið tæpu pró­senti fram í apríl. Haf­steinn ger­ir því ráð fyr­ir að verðbólga muni ná að fara und­ir 4% vik­mörk verðbólgu­mark­miðs Seðlabank­ans í apríl.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðlabank­ans kem­ur sam­an 5. fe­brú­ar og þá með verðbólgu­mæl­ing­ar fyr­ir nóv­em­ber, des­em­ber og janú­ar til viðmiðunar. Að mati Haf­steins eru all­ar lík­ur á að vaxta­lækk­un­ar­ferli Seðlabank­ans haldi áfram á fundi bank­ans í fe­brú­ar og þá í takt við hjöðnun verðbólg­unn­ar.

Fram kem­ur í grein­ing­unni að það sé ekki spurn­ing hvort vext­ir lækki á fundi nefnd­ar­inn­ar í fe­brú­ar held­ur hversu mikið.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið nefn­ir Haf­steinn: „Ef verðbólg­an í janú­ar verður í takt við vænt­ing­ar geri ég fast­lega ráð fyr­ir því að Pen­inga­stefnu­nefnd haldi áfram vaxta­lækk­un­ar­ferl­inu í fe­brú­ar. Verðbólga hef­ur nú þegar hjaðnað frá síðasta fundi nefnd­ar­inn­ar og verðbólgu­vænt­ing­ar lækkað, sem merk­ir að raun­vext­ir Seðlabank­ans hafa hækkað frá síðasta fundi. Ef nefnd­in vill halda óbreyttu aðhalds­stigi milli funda þarf hún því lík­lega að aðlaga nafn­vaxta­stigið með vaxta­lækk­un. Á síðasta fundi ræddi nefnd­in ým­ist 25 eða 50 punkta lækk­un, og mér finnst lík­legt að það verði aft­ur kost­irn­ir sem komi til umræðu.“

Að mati Haf­steins eru því góð rök fyr­ir 25-50 punkta lækk­un á fund­in­um, þó er verðbólga aðeins þrálát­ari en Seðlabank­inn spáði í síðasta hefti Pen­inga­mála.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK