Eignastýring Kviku hefur gefið út nýtt fréttabréf eða greiningu, áherslur fyrir 2025. Þar er ítrekað að það stefni í meiri hallarekstur ríkissjóðs en gert hafi verið ráð fyrir þegar áætlun var lögð fram síðasta sumar. Útgjöld voru aukin í fjárlagafrumvarpinu, einkum vegna kostnaðar við örorkulífeyriskerfi, kjarasamninga og aukinna framlaga til samgöngumála. Engu að síður séu líkur á því að heildarjöfnuður ríkissjóðs muni aukast um 60-70 milljarða milli ára, einkum þar sem margvísleg útgjöld í tengslum við eldhræringar á Reykjanesi verði ekki endurtekin.
Greiningin vísar til þess að fróðlegt verði að sjá hvað ný ríkisstjórn geri í fjármálaáætlun sem birt verði í apríl enda skilaboð til stjórnarinnar nokkuð skýr, lækka þurfi verðbólgu og vexti.
Jafnframt kemur fram að hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs sé um 19 milljarðar, að því gefnu að salan á Íslandsbanka gangi eftir á árinu. Lánsfjárþörfin aukist síðan umtalsvert fyrir árið 2026, þegar hún er áætluð um 95 milljarðar.
Í greiningu Kviku er einnig rýnt í árið á hlutabréfamarkaði og þar er því slegið fram að árið geti orðið flestum fjárfestum hagfellt. Fjármagn leiti af innlánsreikningum yfir í áhættumeiri fjárfestingar, öfugt við þróun síðustu tveggja ára. Ítrekað er í greiningunni að félög í Kauphöllinni standi vel og væntingar séu gerðar til afkomubata hjá þeim flestum.
Í samtali við Morgunblaðið nefnir Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdastjóri Kviku eignastýringar:
„Það sem gerist þegar langtímavextir verða lægri en skammtímavextir er að fjármagn leitar í skammtímaávöxtun – t.d. í innlánsreikninga, sem hafa boðið ótrúlega góð kjör síðustu tvö ár. Við höfum séð óhemjumikinn vöxt í innlánum heimilanna, á sama tíma og það hefur verið útflæði t.d. úr hlutabréfasjóðum. Þetta fór saman við laka ávöxtun á hlutabréfamörkuðum. Við búumst við því að þetta snúist við þegar vextir lækka, og það eru einhver teikn um að það sé þegar byrjað að gerast, eins og sterk ávöxtun hlutabréfa síðan í september er til marks um. Við gætum því séð eftirspurn eftir áhættumeiri fjárfestingum taka við sér þegar árinu vindur fram.“
mj@mbl.is