Markaðsvirðið lækkaði um 70 þúsund milljarða

Jen­sen Huang, for­stjóri Nvidia. Fyrirtækið hefur orðið fyrir þungu höggi …
Jen­sen Huang, for­stjóri Nvidia. Fyrirtækið hefur orðið fyrir þungu höggi vegna DeepSeek. AFP

Hlutabréfaverð nokkurra stórra alþjóðlegra tæknifyrirtækja hríðlækkaði í gær eftir að fréttir um uppgang kínverska gervigreindarfyrirtækisins DeepSeek skóku markaði.

Gengi tæknirisans Nvidia lækkaði um rúmlega 16% eða sem nemur 500 milljörðum dala. Það jafngildir tæplega sautjánfaldri landsframleiðslu Íslands, eða 70.000 milljörðum króna.

Er Nvidia þó enn eitt verðmætasta fyrirtæki heims, en markaðsvirði þess er um 2.900 milljarðar dala og eru aðeins Apple og Microsoft þau skráðu fyrirtæki sem eru hærra metin.

Óvænt útspil Kínverja

Nvidia er stór framleiðandi á örgjörvum sem hafa þótt mjög góðir til að leysa útreikninga sem tengjast uppgangi gervigreindar og hefur verðmæti fyrirtækisins margfaldast á síðustu árum. 

Það sem hefur komið fjárfestum vestanhafs á óvart í vikunni er útspil Kína í formi DeepSeek, en forsvarsmenn fyrirtækisins kynntu gervigreindartólið með þeim formerkjum að þróun gervigreindarinnar hefði kostað 5,6 milljónir dala, eða sem nemur um 780 milljónum króna. 

Er það aðeins dropi í hafið samanborið við þær fjárfestingar sem bandarísku tæknirisarnir hafa hingað til fjárfest í gervigreind og hafa áform um að fjárfesta á komandi tímum.

Gengi fleiri fyrirtækja lækkar

Þannig hafa Microsoft og Meta meðal annars gefið út að þau hafi ætlað að fjárfesta milljörðum dala í tækninni á komandi misserum.

Hlutabréfaverð annarra tæknifyrirtækja vestanhafs lækkaði einnig í viðskiptum í gær, meðal annars í Alphabet, móðurfélagi Google og Microsoft.

Það á einnig við um japanska fjárfestingabankann Softbank, en nýlega var tilkynnt um að bankinn væri stór þátttakandi í 500 milljarða dala fjárfestingu í gervigreind í Bandaríkjunum. Lækkaði gengi bankans um 8% í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK