Viðurkenningarhátíð Félags kvenna í atvinnulífinu verður haldin á Hótel Reykjavík Grand í dag, 29. janúar og hefst stundvíslega klukkan 17:15.
FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega og á hátíðinni eru konur úr atvinnulífinu heiðraðar en þetta er í 26. sem konum í atvinnulífinu er veitt viðurkenning.
Viðurkenningarnar sem veittar verða í dag við hatíðlega athöfn eru FKA Viðurkenningin fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið eða er konum í atvinnulífinu sérstök hvatning og fyrirmynd, Hvatningarviðurkenning FKA fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar í atvinnurekstri og Þakkarviðurkenning FKA
fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu.
Hægt er að fylgjast með viðburðinum í beinni útsendingu hér á mbl.is en dagskráin hefst klukkan 17:15.