Nýtt skipurit hefur tekið gildi hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures. Í fréttatilkynningu segir að skipuritið endurspegli vöxt á síðustu árum með kaupum á öðrum fyrirtækjum í ferðaþjónustu og byggi á nýrri stefnumótun sem er ætlað að auka skilvirkni og efla félagið til framtíðar.
Birkir Björnsson sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra upplýsingatækni og stafrænnar sölu tekur við sem framkvæmdastjóri viðskiptasviðs. Hann mun leiða sölu- og markaðsmál Arctic Adventures auk upplýsingatækni.
Birta Ísólfsdóttir tekur við nýju sviði og verður framkvæmdastjóri áfangastaða. Hún mun sjá um uppbyggingu og rekstur áfangastaða svo sem Kersins, Fjarðárgljúfurs, Óbyggðasetursins og annarra áfangastaða í rekstri Arctic Adventures og dótturfélaga. Birta mun auk þess leiða sjálfbærni- og menningarmál. Birta var áður framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs.
Byron Conroy verður áfram framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Undir rekstrarsvið heyrir rekstur og framkvæmd ferða, ævintýraferðir og hótelstarfsemi Arctic Adventures.
Inga Miskine verður framkvæmdastjóri þjónustu en hún hefur síðustu ár stýrt þjónustuveri og skrifstofu félagsins í Litháen.
Ásta María Marinósdóttir er framkvæmdastjóri Special Tours sem Arctic keypti síðasta sumar. Special Tours verður áfram rekið sem sjálfstætt dótturfélag Arctic Adventures.
Teitur Þór Ingvarsson er framkvæmdastjóri fjármála hjá Arctic Adventures.
Ásgeir Baldurs er forstjóri Arctic Adventures.
Í tilkynningunni segir að auk þessara breytinga á framkvæmdastjórn komi tveir einstaklingar inn í stjórnendahóp Arctic Adventures. Lina Zygele mun taka við sem markaðsstjóri Arctic Adventures og Þóra Matthildur Þórðardóttir mun taka við sem sölustjóri fyrirtækjasviðs Arctic Adventures samhliða núverandi starfi sínu sem sölu- og markaðsstjóri Special Tours.
„Við erum ánægð með nýtt skipurit sem er í takt við nýja tíma hjá okkur í Arctic Adventures og endurspeglar nýjar áherslur. Fyrirtækið hefur stækkað hratt á síðustu árum og við höfum skýra framtíðarsýn. Innanborðs er mikill mannauður og stjórnendateymið hefur dýrmæta reynslu og sérþekkingu á íslenskri ferðaþjónustu. Við hlökkum til að vinna með nýjum stjórnendum og eins er afar ánægjulegt að fylgjast með reynslumiklu fólki úr okkar hópi taka við nýjum hlutverkum,” segir Ásgeir Baldurs í tilkynningunni.