Bjarni K. Þorvarðarson tók við sem forstjóri Coripharma í kjölfar þess að hann hafði verið hluti af fjárfestahópi sem sá tækifæri í að kaupa lyfjaverksmiðju Actavis á Íslandi eftir að Teva, sem átti verksmiðjuna sem áður var í eigu Actavis, ákvað að loka starfseminni. Bjarni lét af störfum sem forstjóri 2020 en starfar nú sem stjórnarformaður.
„Það var mikil sérfræðiþekking á Íslandi í lyfjaiðnaði, og við sáum tækifæri til að nýta þá þekkingu frekar en að láta hana hverfa,“ segir Bjarni.
Hann lýsir því að uppbygging Coripharma hafi ekki verið einföld, en að mikil fjárfesting hafi verið lögð í fyrirtækið. „Við höfum sett yfir 10 milljarða í að byggja þetta upp frá 2018, og það hefur gengið mjög vel,“ segir hann. Þrátt fyrir að framleiðsla lyfja sé oft ódýrari í löndum eins og Búlgariu, Möltu eða Indlandi segir Bjarni að Coripharma hafi ákveðið að leggja áherslu á þróun hérlendis en ekki fjöldaframleiðslu.
„Við keppum ekki við lönd sem geta framleitt hundruð milljóna taflna á lágu verði. Við sérhæfum okkur í flóknari framleiðsluferlum, þar sem lítið magn er framleitt en kröfurnar um nákvæmni og stöðugleika eru miklar,“ segir hann.
Bjarni lýsir því að einn helsti styrkleiki Coripharma sé orðstírinn sem íslenskt starfsfólk í lyfjaiðnaði hefur byggt upp. „Þegar lyf detta út af einkaleyfi þurfa lyfjasöluaðilar að velja samstarfsaðila fjórum árum fyrir þann tíma. Við byggjum á orðstír Actavis-tímans og höfum í dag níu af tíu stærstu lyfjasöluaðilum Evrópu sem viðskiptavini,“ útskýrir Bjarni. Hann bætir við að ef Coripharma hefði verið stofnað frá grunni í öðru landi hefði verið ómögulegt að vaxa jafn hratt.
Bjarni segist ánægður með hversu langt Coripharma er komið og telur fyrirtækið vera á þeim stað sem það stefndi að – að þróa og markaðssetja fimm ný lyf á ári. „Næsta skref er að skrá fyrirtækið á markað, en það fer eftir markaðsaðstæðum og því hvenær við náum stöðugum og jákvæðum rekstrarniðurstöðum. Ég myndi ekki vera hissa ef það gerðist árið 2026 en jafnvel fyrr,“ segir hann.
Lesa má greinina í heild sinni í ViðskiptaMogganum í sem kom út í morgun.