Fjártækni og þróun fjármálaþjónustu verður í brennidepli á viðburði sem haldinn verður í Norðurljósasal Hörpu fimmtudaginn 30. janúar. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og Fjártækniklasans, þar sem fjallað verður um þær miklu tækniframfarir sem hafa átt sér stað í fjármálageiranum á undanförnum árum og þau miklu tækifæri sem framundan eru undir yfirskriftinni Fjármálaþjónusta framtíðarinnar.
Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, segir að um byltingu á mörgum sviðum sé að ræða. „Við sjáum hvernig tæknin hefur gjörbreytt aðgengi og þjónustu í fjármálageiranum. Þar sem fólk þurfti áður að standa í biðröðum í bankaútibúum, er nú hægt að sinna öllum sínum fjármálum í gegnum snjalltæki. Þetta hefur lækkað kostnaðinn við fjármálaþjónustu verulega og aukið þjónustustig til muna,“ segir hún.
Með þróun fjártækninnar skapast einnig áskoranir, sérstaklega í tengslum við reglur og öryggi. „Við þurfum að tryggja að reglur fylgi þessari hröðu þróun, sérstaklega þegar kemur að öryggi og persónuvernd. Við erum að fá til okkar sérfræðinga frá mismunandi sviðum sem munu ræða þessi mál, þar á meðal opna bankaþjónustu (e. open banking) og áhrif þess á samkeppni,“ útskýrir Heiðrún.
Hún bendir á að mikilvægur þáttur í þessari þróun sé aukin krafa neytenda um gagnsæi og betri kjör. „Neytendur eru í dag betur upplýstir og færari um að taka ákvarðanir um fjármál sín. Þeir færa sig auðveldlega á milli fjármálafyrirtækja í leit að hagstæðari kjörum, og ný tækni styður þá í því ferli.“
Heiðrún telur að Ísland hafi alla burði til að verða miðstöð fjártækni á alþjóðavísu. „Við erum fámenn þjóð en tæknivædd, sem gerir okkur kleift að þróa og prófa nýjar lausnir hratt. Nú þegar eru íslensk fjártæknifyrirtæki að hasla sér völl á erlendum mörkuðum og við sjáum mikla möguleika í að auka enn frekar samstarf og nýsköpun á þessu sviði,“ segir hún.
Hún nefnir að á viðburðinum í Hörpu muni koma fram forystufólk úr ólíkum áttum sem munu ræða framtíð fjártækni og hvernig Ísland geti nýtt sér þessa þróun á borð við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, og Guðmund Kristjánsson, forstjóri Lucinity, Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. „Við erum að sjá fleiri hugbúnaðarfyrirtæki en nokkru sinni áður taka þátt í ýmsum þáttum fjármálaþjónustu, sem eykur samkeppni og fjölbreytni á markaðnum,“ bætir hún við.
Greinin birtist fyrst í ViðskipaMogganum.