Landsbankinn hagnaðist um 37,5 milljarða króna eftir skatta á síðasta ári, samanborið við 33,2 milljarða króna árið áður. Þetta kemur fram í uppgjöri bankans.
Arðsemi eiginfjár var 12,1%, samanborið við 11,6% árið 2023. Á fjórða ársfjórðungi 2024 nam hagnaðurinn 10,6 milljörðum króna með arðsemi eiginfjár upp á 13,3%.
Bankaráð Landsbankans hyggst leggja til við aðalfund að greiða tæplega 19 milljarða króna í arð vegna ársins 2024, sem nemur um 50% af hagnaði ársins.
Eiginfjárhlutfall bankans í lok ársins var 24,3%, en Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands gerir 20,4% heildarkröfu um eiginfjárgrunn.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands birti í september niðurstöður mats síns um að bankinn væri hæfur til að fara með virkan eignarhlut í TM tryggingum hf. Beðið er niðurstöðu málsmeðferðar Samkeppniseftirlitsins.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir í tilkynningunni að bankinn hafi náð öllum helstu markmiðum sínum á árinu 2024, bæði varðandi þjónustu við viðskiptavini og fjárhagslega afkomu.
„Fjórði ársfjórðungur var einn sá sterkasti í sögu bankans og góð rekstrarafkoma byggir á traustum grunni. Við höldum áfram að veita frábæra þjónustu, efla sjálfbærni og tryggja viðskiptavinum hagkvæmar og áreiðanlegar lausnir," er haft eftir Lilju.
Hún tekur jafnframt fram að kaup bankans á TM munu sömuleiðis gefa bankanum mörg sóknartækifæri, bæði meðal fyrirtækja og einstaklinga.
„Við teljum að samþætting banka- og tryggingastarfsemi komi sér vel fyrir viðskiptavini, sé hagkvæm og feli í sér mörg tækifæri, eins og reynslan af slíkum rekstri víða í Evrópu hefur sýnt. Um leið munu kaupin fjölga tekjustoðum og styðja við arðsemi til framtíðar. Það er ekki síst markviss stefna bankans undanfarin ár, að bjóða viðskiptavinum um allt land framúrskarandi þjónustu, bæði með því að vera á staðnum og í gegnum frábært app og aðrar tæknilausnir, sem skapar tækifæri fyrir bankann og TM. Meðal helstu tíðinda í íslensku viðskiptalífi á liðnu ári var yfirtaka JBT á Marel. Landsbankinn hefur lengi, í gegnum Eyri Invest, átt óbeinan eignarhlut í Marel sem rekja má til endurfjármögnunar Eyris Invest árið 2009. Virði eignarhlutarins í Eyri hefur sveiflast mikið á undanförnum árum og stundum haft töluverð áhrif á uppgjör bankans, en á heildina litið hefur aðkoma bankans að Marel og Eyri verið afar farsæl," er enn fremur haft eftir Lilju.