Icelandair tapaði 20,2 milljónum Bandaríkjadala á síðasta ári, sem samsvarar 2,76 milljarða króna tapi ef miðað er við meðalgengi síðasta árs. Til samanburðar hagnaðist flugfélagið um 1,5 milljarða árið 2023. Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins.
Tekjur félagsins í fyrra námu 1.570 milljónum dala eða um 216 milljörðum króna, samanborið við 210 milljarða árið á undan.
Einingatekjur á fjórðungnum jukust um 1,5%, aðallega vegna bættrar sætanýtingar. Einingakostnaður lækkaði um 3%, vegna hagræðingar í rekstri og lægri eldsneytiskostnaðar.
Metfjöldi farþega á 4. ársfjórðungi. Heildarfjöldi farþega á árinu 4,7 milljónir, aukning um 9%.
Haft er eftir Boga Nils Bogasyn forstjóra Icelandair að á árinu 2024 hafi félagið náð góðum árangri í rekstri leiðakerfisins sem endurspeglaðist meðal annars í framúrskarandi stundvísi en félagið var útnefnt eitt af stundvísustu flugfélögum í Evrópu yfir sumarmánuðina.
„Við náðum verulegum rekstrarbata á fjórða ársfjórðungi í öllum einingum. Þróun einingatekna er að snúast við og náðum við að draga úr áhrifum ýmissa kostnaðarhækkana með áherslu á umbætur í rekstri. Rekstrarniðurstaða ársins í heild var í takt við afkomuspá sem við gáfum út í október síðastliðinn en við gerum ráð fyrir að sú jákvæða þróun sem við sáum í fjórða ársfjórðungi muni halda áfram á komandi mánuðum. Horfur fyrir árið 2025 eru góðar og bókunarstaðan nú er sterkari en á sama tíma í fyrra. Við áætlum að auka flugframboð um 8% á árinu, með áherslu á vöxt utan háannar sem gerir okkur kleift að nýta innviði betur og bjóða viðskiptavinum okkar upp á fleiri ferðamöguleika en nokkru sinni áður. Til þess að bæta árangur og afkomu félagsins til lengri tíma, hófum við yfirgripsmikla umbreytingarvegferð snemma á árinu 2024. Í lok ársins höfðum við þegar ráðist í hagræðingarverkefni sem munu skila yfir 20 milljónum dala á ársgrundvelli. Við gerum ráð fyrir að vegferðin muni skila samtals 70 milljónum dala á ársgrundvelli í lok árs 2025 í kjölfar frekari umbóta á þessu ári," er haft eftir Boga.