Næstu skref í fjártækni

Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu.
Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Ljósmynd/Aðsend

Ein af stóru breytingunum í tæknibyltingu fjármálageirans sem staðið hefur yfir undanfarin ár er, að sögn Heiðrúnar Jónsdóttur framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, aðgengi að fjármálaþjónustu á einum stað í gegnum opna bankaþjónustu (e. open banking). 

„Þetta mun veita neytendum meiri yfirsýn og getu til að bera saman þjónustuaðila. Þróunin er mjög jákvæð, en við þurfum einnig að gæta varúðar, sérstaklega þegar kemur að netöryggi og svikum,“ segir hún og bendir á að ný tækni muni einnig auðvelda nýjum fyrirtækjum að koma inn á markaðinn og auka samkeppni og fjölbreytni í þjónustu. 

Aðspurð um hvernig íslensk tækni standi í samanburði við erlenda þróun segir Heiðrún að íslensk nýsköpunarfyrirtæki séu mjög framarlega, sérstaklega í gervigreind og stafrænum lausnum. 

„Við höfum séð mikla þróun hér á landi, en það er lykilatriði að regluverkið fylgi eftir og styðji þessa þróun á réttan hátt,“ útskýrir hún. 

Áhrif tækninnar á störf í fjármálageiranum 

Heiðrún telur að sjálfvirknivæðing muni hafa mikil áhrif á störf í fjármálageiranum, líkt og í öðrum atvinnugreinum. 

„Við sjáum að mannfrekustu störfin eru smám saman að hverfa og tækni tekur við. Það hefur verið ákveðin þróun undanfarin ár, en það jákvæða er að viðskiptavinir fá betri yfirsýn og upplýsingar, sem gerir þeim auðveldara að taka upplýstar ákvarðanir,“ segir hún og bendir á að hreyfanleiki neytenda hafi mælst mestur á Íslandi í samaburði við önnur ríki í Evrópu. 

Evrópa hefur verið að taka stór skref í að tæknivæða fjármálakerfið, meðal annars í samkeppni við Bandaríkin og Asíu. „Evrópsku bankasamtökin hafa haft áhyggjur af því að önnur lönd séu að taka forskot í þessum málum og því er mikilvægt að við setjum skýrar reglur um persónuvernd og aðgengi að upplýsingum,“ segir Heiðrún. 

Hún bendir þó á að reglur þurfi að vera einfaldar og ekki hindra þróunina. „Við sjáum nú þegar að nýjar reglugerðir eru í undirbúningi og það er mikilvægt að þær stuðli að samkeppni og nýsköpun, en um leið tryggi öryggi neytenda.“ 

Heiðrún telur að næsta bylting í fjármálaþjónustu verði meiri samþætting gagna og opnun fjármálaupplýsinga á einum stað. 

„Það mun veita neytendum sterkari stöðu og skapa ný tækifæri fyrir nýsköpun og samkeppni. Hins vegar er mikilvægt að fara varlega og tryggja að öryggismál séu í fyrirrúmi,“ segir hún. 

Að lokum leggur hún áherslu á mikilvægi þess að Ísland fylgist vel með alþjóðlegri þróun og nýti tækifærin sem fjártækni býður upp á. „Við höfum alla burði til að verða leiðandi í þessum geira, en það krefst skýrra reglna, nýsköpunar og samvinnu,“ segir Heiðrún að lokum. 

Greinin birtist fyrst í ViðskiptaMogganum.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK