Sleggjan breytist í Landfara

Landfari er í Mosfellsbæ og Klettagörðum. Í júní bætist við …
Landfari er í Mosfellsbæ og Klettagörðum. Í júní bætist við fullbúið verkstæði að Álfhellu í Hafnarfirði. Ljósmynd/Aðsend

Samkvæmt tilkynningu þá hefur Sleggjan, systurfélag Öskju, fengið nýtt nafn og verður nú Landfari. Fyrirtækið er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi.

Landfari er dótturfélag Vekru sem einnig er eigandi Bílaumboðsins Öskju er viðurkenndur sölu og þjónustuaðili Mercedes- Benz, Kia, Honda og smart. Vekra á jafnframt bílaumboðið Unu, sem er umboðsaðili Xpeng á Íslandi, ásamt eignarhaldi á Hentar og Dekkjahöllinni. Vekra á auk þess meirihluta í bílaleigunni Lotus.

Vekra velti á árinu 2024 um 30 milljörðum og eru starfsmenn félaganna um 250 talsins.

„Það eru spennandi tímar fram undan hjá Landfara. Við erum að stórefla þjónustuna með stærra húsnæði í Klettagörðum og nýrri staðsetningu að Álfhellu 15 í Hafnarfirði, en þar verður opnað fullbúið verkstæði fyrir atvinnubíla 1. júní næstkomandi. Orkuskipti í flutningum eru að slíta barnsskónum en Mercedes- Benz Trucks er í fararbroddi í þróun rafknúinna vörubíla og undirbúum við nú komu eActros 600 en það er vörubíll með allt að 500 km drægni á einni hleðslu miða við 40 tonna þyngd“, segir Eiríkur Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Landfara. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK