Yfir 700 þátttakendur á ferðakaupstefnu Icelandair

Ferðakaupstefna Icelandair hófst í dag í Laugardalshöll.
Ferðakaupstefna Icelandair hófst í dag í Laugardalshöll. Árni Sæberg

Icelandair Mid Atlantic-ferðakaupstefnan verður sett í 30. sinn í dag í Laugardalshöll. Kaupstefnan er sú stærsta sinnar tegundar hér á landi og er einn af lykilviðburðunum í íslenskri ferðaþjónustu. Þar munu koma saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu beggja vegna Atlantshafsins, auk fjölda íslenskra ferðaþjónustuaðila, til að skapa mikilvæg tengsl og efla viðskiptasambönd.

Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair, segist reikna með að yfir 700 þátttakendur muni leggja leið sína í Laugardalshöll um helgina.

„Ferðakaupstefnan er í raun okkar leið til þess að búa til tengsl á milli annars vegar seljenda þjónustu og upplifunar og hins vegar kaupenda, t.d. ferðaskrifstofa, á markaðssvæðum okkar,“ segir Tómas í samtali við mbl.is.

Hann segir það vera mjög ánægjulegt að sjá leiðakerfi Icelandair lifna við á tveggja ára fresti þegar ferðaþjónustuaðilar af ýmsum þjóðernum komi saman og ræða málin.

„Núna munu þátttakendur af 22 þjóðernum koma til Íslands, til þess að hittast, skiptast á skoðunum, búa til viðskiptasambönd og þróa þjónustuna áfram. Þetta verður stærra með hverju skiptinu, þar sem leiðakerfi Icelandair stækka með hverju árinu. Við munum fljúga til 62 flugvalla á 58 áfangastöðum á þessu ári, þannig að leiðakerfi Icelandair er orðið mjög umfangsmikið,“ segir Tómas.

Hann segir aukin umsvif Icelandair sjást í 13% fjölgun þátttakenda frá því fyrir tveimur árum þegar kaupstefnan var síðast haldin.

Veðurviðvaranir hafa verið gefnar út á landinu öllu um helgina og segir Tómas aðspurður að það muni ekki koma að sök enda sé íslenska veðráttan upplifun í sjálfu sér.

„Það geta verið alls konar veður hérna á Íslandi á meðan þátttakendur eru á landinu. En við segjum að veðrið sé hluti af upplifuninni og þau fái heildarupplifun af Íslandi um helgina. Þau geta fengið sýnishorn af öllum veðurafbrigðum á tveimur dögum,“ segir Tómas léttur í bragði.

Hér sést Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair ásamt fríðu föruneyti.
Hér sést Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair ásamt fríðu föruneyti. Árni Sæberg
Gert er ráð fyrir að yfir 700 þátttakendum á ferðarkaupstefnu …
Gert er ráð fyrir að yfir 700 þátttakendum á ferðarkaupstefnu Icelandair um helgina. Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK