Hagnaður Festi á síðasta ári nam 4.018 milljónum króna og heildarafkoman 6.422 milljónum króna en endurmat fært beint á eigið fé vegna fasteigna félagsins í árslok 2024, nam 2.437 milljónum króna.
Hagnaður fjórðungsins nam 632 milljónum króna og lækkar um 35,2% milli ára en hækkar um 41,7% án áhrifa stjórnvaldssektar á afkomu fjórðungsins.
EBITDA ársins 2024 nam 12.511 milljónum króna en hefði verið 13.940 milljónir króna með rekstur Lyfju inni allt árið og án áhrifa stjórnvaldssektar. EBITDA spá félagsins fyrir árið 2025 nemur 14.400 – 14.800 milljónir króna.
Laun og starfsmannakostnaður nam 5.202 milljónum króna og eykst um 31,6% milli ára en 7,6% án áhrifa Lyfju. Einskiptiskostnaður vegna stjórnvaldssektar að fjárhæð 750 milljónum króna hækkar rekstrarkostnað og lækkar EBITDA í fjórðungnum, sjá skýringu 32 í ársreikningi félagsins.
Eigið fé nam 43.493 milljónum króna og er eiginfjárhlutfallið 37,9% í lok árs 2024 samanborið við 37,3% árið áður.
Vörusala nam 41.946 milljónum króna sem er aukning um 19,0% milli ára en 6,1% án áhrifa Lyfju sem kom inn í samstæðuna frá júlí 2024.
Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 10.267 milljónir króna sem er aukning um 26,6% á milli ára en 8,5% án áhrifa Lyfju. Framlegðarstig nam 24,5% og hækkar um 1,5 p.p. frá 4F 2023 en stendur í stað frá síðasta ársfjórðungi.
„Rekstur félagsins gekk vel á fjórða ársfjórðungi og fór fram úr væntingum. Ánægjulegt var að fjöldi heimsókna og selt magn jókst í flestum verslunum milli ára ásamt því að góð aukning náðist í seldum eldsneytislítrum. Horfandi fram á veginn er ljóst að félagið okkar er að stækka og eflast. Áhersla verður áfram á að bæta tekjuvöxt, halda aftur af kostnaði og skerpa á skilvirkni til að auka framlegð og lækka einingakostnað. Fjölmörg tækifæri skapast með innkomu Lyfju í samstæðuna sem unnið verður að á árinu samhliða gríðarmörgum öðrum spennandi verkefnum sem gaman verður að segja frá þegar líður á árið. Við erum stolt af þeim árangri sem náðist á síðasta ári og þökkum það fyrst og fremst tryggum viðskiptavinum og einstöku starfsfólki okkar um land allt,“ er haft eftir Ástu S. Fjeldsted forstjóra Festi í fréttatilkynningu.