Handhafar UT-verðlauna Ský 2025

Erling Guðmundsson, framkvæmdarstjóri rekstrar atNorth og Halla Tómasdóttir forseti Íslands.
Erling Guðmundsson, framkvæmdarstjóri rekstrar atNorth og Halla Tómasdóttir forseti Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Gagnavers- og ofurtölvufyrirtækið atNorth er meðal handhafa Upplýsingatækniverðlauna Skýrslutæknifélagsins (Ský) 2025. Verðlaunin afhenti forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, við hátíðlega athöfn á UT-messunni í Hörpu fyrir helgi, en þau voru veitt stóru gagnaverunum á Íslandi, atNorth, Borealis Data Center og Verne Global.

Haft er eftir Erling Guðmundssyni, framkvæmdarstjóri rekstrar atNorth að fyrirtækið sé afskaplega stolt af verðlaununum.

„Við erum afskaplega stolt af þessum verðlaunum og viðurkenningunni á mikilvægi þessa ört vaxandi geira upplýsingatækninnar sem í þeim felst. Íslensk gagnaver hafa látið til sín taka á þessu sviði á heimsvísu og eru í fararbroddi með sjálfbærni að leiðarljósi. Vöxtur geirans hefur verið hraður og fyrirséð að hann verði það áfram, en líkt og fram kemur í umsögn valnefndar munu gagnaver leika sívaxandi hlutverk á heimsvísu næstu ár, með tilkomu gervigreindar og vexti skýjaþjónustu,“ er haft eftir Erling.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK