Costco tilkynnir talsverðar launahækkanir

Reynslulitlir starfsmenn munu fá 20 dali á tímann, og hækka …
Reynslulitlir starfsmenn munu fá 20 dali á tímann, og hækka um 0,5 dali á tímann. AFP

Talsverðar launahækkanir hafa verið tilkynntar fyrir flesta starfsmenn Costco í Bandaríkjunum.

„Með þessum breytingum teljum við tímakaup okkar og fríðindi halda áfram að vera langt umfram aðra í smásöluiðnaðinum,“ segir í minnisblaði sem forstjórinn Ron Vachris skrifar undir.

Reuters greinir frá.

85% félagsmanna vilja fara í verkfall

Mun fyrirtækið hækka laun reynslumikilla starfsmanna verslana í yfir 30 dali á klukkustund, samkvæmt ofangreindu minnisblaði sem sent var til starfsmanna.

Mun tímakaup umræddra starfsmanna hækka í skrefum næstu þrjú árin. Fyrsta árið hækkar það um einn dal og svo einn dal aukalega næstu tvö árin.

Reynslulitlir starfsmenn munu fá 20 dali á tímann, og hækka um 0,5 dali á tímann.

Kemur launahækkunin í kjölfar þess að starfsmenn Costco sem tilheyra stéttarfélagi sögðu fyrr í mánuðinum að greidd hefðu verið atkvæði með verkfalli á landsvísu.

Stéttarfélagið, sem yfir 18.000 starfsmenn tilheyra, sagði 85% félagsmanna hafa greitt atkvæði með verkfalli.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK