Félag löggiltra endurskoðenda (FLE) hefur farið þess á leit við ársreikningaskrá ríkisskattstjóra að endurskoða ákvörðun sína um skráningu samstæðureiknings Isavia ohf. og dótturfélaga vegna reikningsársins 2023. FLE krefst þess að ákvörðunin yrði breytt og hafnað verði skráningu samstæðureikningsins í ársreikningaskrá, sem hefur 10 daga til að verða við beiðninni. FLE áskilur sér rétt til að leggja fram stjórnsýslukæru til menningar- og viðskiptaráðuneytisins.
FLE byggir kröfuna á lögfræðiáliti frá Jónatansson & Co Legal, þar sem fullyrt er að áritun ríkisendurskoðanda á samstæðureikningum félaga sem eru í meirihlutaeigu ríkisins fari í bága við lög um ársreikninga og laga um endurskoðendur.
Hróbjartur Jónatansson lögmaður segir lögin vera skýr, þ.e. ríkisendurskoðandi sé ekki löggiltur endurskoðandi og þess vegna eigi að hafna skráningu samstæðureiknings Isavia.
„Ríkisendurskoðandi er ekki löggiltur endurskoðandi og hefur ekki réttindi sem slíkur. Forstjóri Ríkisendurskoðunar ritar undir samstæðureikninginn sem opinber starfsmaður án þess að löggildur endurskoðandi komi þar sýnilega nærri. Það liggur fyrir að ríkisendurskoðandi hefur ekki hæfi samkvæmt lögum að árita ársreikninga endurskoðunarskyldra félaga sem ber að skila ársreikningum sínum til ársreikningaskrár,“ segir Hróbjartur í samtali við Morgunblaðið.