Uppgjör skýrist á fundi 10. apríl

Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs.
Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs. Ljósmynd/Aðsend

Í síðustu viku var kynnt að viðræðunefnd fjár­mála- og efna­hags­ráðherra ásamt ráðgjafa 18 líf­eyr­is­sjóða hefði mótað til­lög­ur um upp­gjör HFF-bréfa svo­kallaðra, sem greiða mun fyr­ir slit­um ÍL-sjóðs (áður Íbúðalána­sjóðs). Kröf­ur sam­kvæmt HFF-bréf­um eru í upp­gjör­inu metn­ar á 651,4 millj­arða króna en mikið hef­ur verið fjallað um mál­efni sjóðsins að und­an­förnu. Rík­is­sjóður er ábyrgðaraðili sjóðsins og helstu kröfu­haf­ar líf­eyr­is­sjóðir lands­ins.

Morg­un­blaðið leitaði til Ólafs Sig­urðsson­ar, fram­kvæmda­stjóra Birtu líf­eyr­is­sjóðs, um viðræðurn­ar en Birta er einn þeirra líf­eyr­is­sjóða sem um ræðir:

„Staðreynd­in er sú að þeir ráðgjaf­ar sem leiddu viðræðurn­ar fyr­ir hönd 18 sjóða gátu ekki og máttu ekki nema að mjög tak­mörkuðu leyti ráðfæra sig við líf­eyr­is­sjóðina um málið. Það leiðir af eðli máls­ins, sem er að þrátt fyr­ir lít­il viðskipti með HFF-bréf­in gilda engu að síður ákveðnar regl­ur um þátt­töku kröfu­hafa í viðræðum við út­gef­end­ur skráðra skulda­bréfa.“

Ólaf­ur bæt­ir við:

„Ef okk­ur hefði lánast að móta regl­ur um umboðsmenn skulda­bréfa­eig­enda (e. bond­holder ag­ent) hefði ferlið frá upp­hafi verið eft­ir ákveðinni forskrift. Að mínu mati var sú nálg­un þeirra sjóða sem ákváðu að ráða sér ráðgjafa til að leiða viðræðurn­ar rétt og í sam­ræmi við alþjóðleg viðmið um viðræður út­gef­enda og eig­enda skráðra skulda­bréfa. Það er ekk­ert nýtt að þeir sem taka lán á föst­um vöxt­um vilji helst greiða þau upp þegar vext­ir eru lág­ir og lægri en ákvæðis­vext­ir úti­stand­andi bréfa. Það er alla jafna kallað lána­stýr­ing. Það er að sama skapi eðli­legt að þeir sem kaupa lán­in vilji fá bæt­ur fyr­ir upp­greiðslu á föst­um vöxt­um enda þurfi þeir að end­ur­fjárfesta upp­greiðslunni.“

Fund­ur er boðaður 10. apríl þar sem end­an­leg­ar til­lög­ur um breyt­ing­ar á greiðslu­skil­mál­um HFF-bréfa verða lagðar fyr­ir fund skulda­bréfa­eig­enda til samþykk­is. Verði til­lag­an samþykkt er gert ráð fyr­ir að fjár­mála- og efna­hags­ráðherra leggi fyr­ir Alþingi frum­varp til fjár­auka­laga vegna upp­gjörs.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK