Meðaltal leigu 263 þúsund krónur

Í mánaðarskýrslu HMS kemur að á höfuðborgarsvæðinu hafi verið dýrast …
Í mánaðarskýrslu HMS kemur að á höfuðborgarsvæðinu hafi verið dýrast að leigja á Seltjarnarnesi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Meðaltal markaðsleigu í ný­skráðum samn­ing­um í fe­brú­ar var 263 þúsund krón­ur og er óbreytt frá fyrri mánuði. Kem­ur þetta fram í nýrri mánaðar­skýrslu Hús­næðis- og mann­virkja­stofn­un­ar (HMS).

Í skýrslu HMS kem­ur fram að á höfuðborg­ar­svæðinu hafi verið dýr­ast að leigja á Seltjarn­ar­nesi, þar sem meðalleiga var um 338 þúsund krón­ur, en ódýr­ast í Reykja­vík­ur­borg, þar sem meðal­verð var 274 þúsund krón­ur.

Sé hins veg­ar litið til leigu­verðs á hvern fer­metra er þessu öf­ugt farið þar sem meðal fer­metra­verð var hæst í Reykja­vík­ur­borg en lægst á Seltjarn­ar­nesi. Skýr­ing­in ligg­ur í því að alla jafna eru stærri íbúðir leigðar út á Seltjarn­ar­nesi sam­an­borið við í Reykja­vík.

Í ná­grenni höfuðborg­ar­svæðis­ins var markaðsleiga hæst í Suður­nesja­bæ, um 269 þúsund krón­ur, en lægst í Reykja­nes­bæ, um 245 þúsund krón­ur.
mj@mbl.is

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK