Hagfræðideild Landsbankans birti í morgun uppfærða verðbólguspá. Gerir deildin ráð fyrir meiri verðbólgu til skemmri tíma miðað við fyrri spár hennar. Hún telur að verðbólga verði í janúar verði 4,8% og 3,2% án húsnæðisþáttar. Þetta er töluvert umfram verðbólgumarkmiðum Seðlabankans.
Þó svo að deildin spái hjaðnandi verðbólgu í framhaldinu þá eru blikur á lofti í þeim efnum. Erlendis hefur verðbólga ekki mælst jafn há í áraraðir og er til að mynda 5,4% nú í Bandaríkjunum. Í Bretlandi er vöruskortur á nauðsynjavörum kominn á það stig að fólk er farið að kaupa jólamatinn strax í október. Costco verslanir eru farnar að skammta klósettpappír. Hrávöruskortur er allsráðandi, sem hefur leitt til þess að vöntun á orku er meiri en í manna minnum á sumum svæðum.
Neysluvísitala
Stór hluti af neysluvísitölunni samanstendur af innfluttum vörum. Slíkt kom áþreifanlega fram í framhaldi af hruninu þegar að íslenska krónan hrundi á alþjóðlegum mörkuðum; innfluttar vörur ruku upp í verði með tilheyrandi verðbólgu þrátt fyrir að húsnæðisverð lækkaði rúmlega 15%. Hækkandi verðbólga erlendis á vörum sem Íslendingar flytja inn eykur því að öllu óbreyttu þrýsting á viðvarandi verðbólgu hérlendis á næsta ári.
Seðlabankinn
Seðlabankinn hefur lýst því yfir að stefnan hjá honum sé að viðhalda lágu vaxtastigi. Það gengur þó ekki til lengdar að halda stýrivöxtum miklu lægri en verðbólgu. Skuldabréfamarkaðurinn hefur nú þegar reiknað hækkandi vöxtum í ávöxtunarkröfu skuldabréfa. Ein leið til að draga úr verðbólgu er í gegnum virði fasteigna. Ólíklegt er hins vegar að bankinn vilja snöggkæla fasteignamarkaðinn.
Því tel ég það vera líklegt að Seðlabankinn grípi til þess ráðs að hefja á ný inngrip inná gjaldeyrismarkaði með kaupum á íslensku krónunni. Slíkt leiðir til styrkingar krónunnar. Vegur það á móti þeirri verðbólgu sem nú ríkir erlendis. Með þessu dregur bankinn úr innlendri verðbólgu og kemst hjá því (vonandi) að hér fari verðbólga úr böndunum án þess að snarhækka skammtímavexti.
MWM
Ég var í gær í viðtali hjá Magdalenu Önnu Torfadóttur í þættinum Markaðurinn. Hægt er að sjá það hérna - https://hringbraut.frettabladid.is/sjonvarp/markadurinn/13-oktober-2021/