Bílaumboðið BL var að afhenda 1000 rafbílinn sinn í gær en þeir hófu að selja rafbíla árið 2013. Þetta er kannski ekki svo mikið en leitnin er augljós. Í ár hefur sala nýrra bíla dregist saman um 13% en sala rafbíla aukist um 50%. Rafbílar eru þó ekki nema 1% af íslenska bílaflotanum en er augljóslega að fjölga hratt þessi misserin. Við eigum nokkuð í land að ná Norðmönnum á þessu sviði en þar er 50% nýskráðra bíla rafbílar. Samkvæmt upplýsingum frá BL eru þeir með 68% hlutdeild í sölu hreinna rafbíla. Þeir njóta þess að Nissan náði forskoti með Laufinu (Leaf) og hafa fylgt því vel eftir. Áhugaverðum rafbílum fjölgar í hverjum mánuði og kaupendur standa frammi fyrir stöðugt fleiri valkostum.
Rafbíllinn virðist í dag hin augljósi kostur hér á Íslandi þegar bílaeigendur vilja ráðast í orkuskipti. Það spillir ekki fyrir að rafbílar eru ansi áhugaverðir og skemmtilegir að aka. Það er ekki langt síðan maður hlustaði á marga umboðsaðila tala gegn rafbílum, allt eftir því hvaða áherslur framleiðendur lögðu á í orkuskiptum. Þannig virtust sumir framleiðendur telja að vetni yrði kostur en það er í raun aðeins geymsluaðferð á orkunni og hefur í för með sér talsvert meira orkutap en rafbíl. En þó að rafbíll sé hinn augljósi kostur hér á landi þá hafa menn lengi vel talið að það yrði ekki annars staðar. Þar gæti etanól, vetni eða aðrir orkugjafar allt eins leyst jarðefnaeldsneyti af hólmi. Nú virðast bílaframleiðendur horfa stíft til rafbíla. Það er reyndar rétt að það komi fram að þegar dæmið er reiknað í heild sinni þá má enn hafa efasemdir um mengunaráhrif rafbíla en þetta er skrifað í þeirri trú að framleiðendur muni leysa það vandamál og rafbílar verða þarfasti þjónninn í framtíðinni.
Volkswagen stóreykur rafmagnsbílaframleiðslu
Því var athyglisvert að lesa frétt í Morgunblaðinu í gær þar sem sagt var frá umskiptum Volkswagen, stærsta bílaframleiðanda heims. Volkswagen hefur framleitt áhugaverða rafbíla til þessa en nú hyggst fyrirtækið auka framleiðslu þeirra umtalsvert. Greint var frá því að rekstrarráð Volkswagen muni hittast á föstudag til að greiða atkvæði um tillögur um yfirgripsmiklar breytingar sem gætu leitt til þess að fyrirtækið flýtti áætlunum sínum um að auka framboðið á rafbílum. Félagið íhugar nú að flýta endurnýjun tveggja verksmiðja Volkswagen í Þýskalandi; aðra í Emden og hina í Hannover, svo að þar verði hægt að hefja framleiðslu rafbíla í upphafi næsta áratugar.
Rafbílar miklu einfaldari í framleiðslu
Samkvæmt greiningu Goldman Sachs eru þriðjungi færri íhlutir í rafbíl en hefðbundnum bíl. Þar af leiðandi hefur það að skipta yfir í framleiðslu rafbíla þau áhrif að minnka þörfina fyrir vinnuafl verulega. Stjórnendur Volkswagen gera sér grein fyrir því að færsla yfir í framleiðslu rafbíla mun þýða að fækka þarf starfsfólki. Framleiðendur hafa sagst vilja ráðast í niðurskurðinn með ábyrgum hætti svo að þeir tugir þúsunda starfsmanna félagsins sem eru í eldri kantinum geti sest í helgan stein frekar en þeim verði sagt upp störfum.
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að VW mun ráðstafa 20 milljörðum evra í framleiðslu 50 gerða af rafbílum og 30 gerða af tengiltvinnbílum fram til ársins 2025. Þá verða 50 milljarðar evra til viðbótar notaðir til að tryggja nægjanlegt framboð af rafhlöðum. Er ætlunin að árið 2025 muni fyrirtækið selja að jafnaði 2-3 milljónir rafmagnsbíla ár hvert. Einurð VW sýnir að rafbíllinn er að sigra.
Það skal tekið fram að þau viðhorf sem birtast í þessum pistli eru eingöngu höfundar og á hans ábyrgð.