Fólk er feimið við að festa fé í stærstu flokkum ríkisskuldabréfa sem eru vegna útgáfu Íbúðalánasjóðs. Umræða og misvísandi yfirlýsingar stjórnvalda og stjórnarmanna sjóðsins geri það að verkum að fjárfestar telji þá flokka geta lent í lækkun. Þetta segir Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir. Meira
Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir, segir að greinileg merki um bóluáhrif megi sjá á íslenskum hlutabréfamarkaði. Hann segist ekki sjá merki í afkomu fyrirtækjanna sem réttlæti þær miklu hækkanir sem hafi átt sér stað. Hann spáir því jafnframt að hér geti orðið annað hrun árið 2016, verði ekkert að gert. Meira
Þeir erlendu aðilar sem töpuðu mestu á efnahagshruninu hérlendis hafa fyrir löngu selt kröfur sínar á hendur íslensku bönkunum og innleyst tapið. Meðal þeirra eru þýskir bankar, en í dag eru helstu kröfuhafar föllnu bankanna vogunarsjóðir sem hafa stórgrætt á síðustu árum og jafnvel margfaldað fé sitt. Meira
Fjármagnshöftin og það haftakerfi sem er byggt upp í kringum bjagar alla hvata kerfisins og leiðir fyrirtæki í offjárfestingu á alþjóðlegum verðmætum. Í stað þess að auka umsvif sín á sem hagkvæmastan hátt, þá er athugað hvort fjárfestingin hafi alþjóðlegt verðgildi. Meira
Gjaldeyrishöftin hérlendis eru með þeim ströngustu sem finnast og eru ekki ósvipuð því sem er í gangi í Kína. Þetta segir Heiðar Már Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, í þættinum Viðskipti með Sigurði Má hér á mbl.is Meira
Miklir möguleikar eru fyrir Íslendinga á arðsömum verkefnum, svo sem með auknu samstarfi við Grænland á sviði heilbrigðismála, skipa- og flugflutninga og verkfræði. Þetta segir Heiðar Már Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, í þættinum Viðskipti með Sigurði Má hér á mbl.is. Meira
Slæm áhrif gjaldeyrishaftanna, varúðarorð vegna erlendra vogunarsjóða, tækifæri í samstarfi við Grænland og slæm skuldastaða fyrirtækja og sveitarfélaga vegna glataðra samningatækifæra. Þetta er meðal þess sem Heiðar Már Guðjónsson, ræðir í nýjasta þættinum af Viðskipti með Sigurði Má hér á mbl.is Meira