Nýlega var opnuð verslun undir merkjum Cintamani í Fredericton í fylkinu New Brunswick í Kanada. Að sögn Dagnýjar Guðmundsdóttur, forstjóra fyrirtækisins, hefur vinna við opnun verslunarinnar staðið yfir í um 1 ár, en hún á að vera með svipuðu sniði og verslunin sem nú þegar er rekin í Smáralind. Meira