Nýtt verkstæði Hampiðjunnar rís í Danmörku

Framkvæmdir við nýtt netaverkstæði dótturfélags Hampiðjunnar í Danmörku eru hafnar. …
Framkvæmdir við nýtt netaverkstæði dótturfélags Hampiðjunnar í Danmörku eru hafnar. Stefnt er að því að taka húsnæðið í notkun um mitt næsta sumar. Ljósmynd/Hampiðjan

Cosmos Trawl, dótturfélag Hampiðjunnar í Danmörku, hefur hafið byggingu á nýju 4.800 fermetra netaverkstæði í Skagen til að sinna síaukinni þörf fyrir viðgerðir á flottrollum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Hampiðjunni.

Nýja netaverkstæðið er sagt verða „vandlega búið tækjum og verður eitt hið tæknilegasta og fullkomnasta sem völ er á. Það mun auka möguleika á að þjónusta skip sem koma til hafnar í Skagen en þar er ein stærsta uppsjávarhöfn í Evrópu.“

Þá er staðsetning verkstæðisins sögð mjög heppileg þar sem það er við hafnarkantinn sem gerir það mögulegt að spóla flottrollum beint í og úr skipum sem liggja við bryggjuna. Netaverkstæðið er búið sex stórum flottrollstromlum á gólfinu og í lofti þess, sem er níu metra hátt, eru níu blakkir og kranar. Allur þessi búnaður flýtir fyrir framleiðslu og viðgerðum á trollum og trollpokum og felur því í sér mikla hagræðingu hjá fyrirtækinu.

Vakin er athygli á því að Hampiðjan hefur undanfarna áratugi hannað og framleitt allan eigin tækjabúnað; vindur, tromlur og blakkir, í Litháen fyrir eigin netaverkstæði um allan heim.

Verkstæðið verður stórt og er lega þess sögð sérlega heppileg.
Verkstæðið verður stórt og er lega þess sögð sérlega heppileg. Mynd/Hampiðjan

Í tilkynningunni kveðst Michael Lassen, framkvæmdastjóri Cosmos Trawl, bjartsýnn á að nýtt húsnæði muni hafa mikil jákvæð áhrif á starfsemina.

„Byggingin er mun stærri og betur tækjum búin en sú sem við erum með núna hér í Skagen. Fyrir utan betri aðstöðu fyrir starfsfólkið þá getum við framleitt og gert við stærri veiðarfæri og þar með auðveldar þjónustað stærri skip en áður. Það rímar vel við þau áform sem við höfum um vöxt fyrirtækisins til framtíðar,“ segir hann.

Framkvæmdir eru sagðar ganga vel og er stefnt að því að taka húsnæðið í notkun um mitt næsta sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.5.24 428,11 kr/kg
Þorskur, slægður 14.5.24 476,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.5.24 258,87 kr/kg
Ýsa, slægð 14.5.24 249,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.5.24 128,31 kr/kg
Ufsi, slægður 14.5.24 132,47 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 14.5.24 258,83 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.5.24 Fagra Fríða AK 44 Handfæri
Þorskur 823 kg
Ufsi 42 kg
Samtals 865 kg
14.5.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 719 kg
Ufsi 34 kg
Samtals 753 kg
14.5.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 892 kg
Ufsi 52 kg
Karfi 5 kg
Samtals 949 kg
14.5.24 Skírnir AK 12 Handfæri
Þorskur 767 kg
Samtals 767 kg
14.5.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 753 kg
Ufsi 140 kg
Samtals 893 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.5.24 428,11 kr/kg
Þorskur, slægður 14.5.24 476,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.5.24 258,87 kr/kg
Ýsa, slægð 14.5.24 249,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.5.24 128,31 kr/kg
Ufsi, slægður 14.5.24 132,47 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 14.5.24 258,83 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.5.24 Fagra Fríða AK 44 Handfæri
Þorskur 823 kg
Ufsi 42 kg
Samtals 865 kg
14.5.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 719 kg
Ufsi 34 kg
Samtals 753 kg
14.5.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 892 kg
Ufsi 52 kg
Karfi 5 kg
Samtals 949 kg
14.5.24 Skírnir AK 12 Handfæri
Þorskur 767 kg
Samtals 767 kg
14.5.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 753 kg
Ufsi 140 kg
Samtals 893 kg

Skoða allar landanir »