Sjóvá og Síldarvinnslan áfram í samstarfi

Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar og Hermann Björnsson forstjóri Sjóvá við …
Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar og Hermann Björnsson forstjóri Sjóvá við undirritun samningsins. Ljósmynd/Sjóvá

Gunnþór Ingvarsson forstjóri Síldarvinnslunnar og Hermann Björnsson forstjóri Sjóvá undirrituðu nýlega áframhaldandi samstarfssamning um tryggingar. Samningurinn felur í sér að Sjóvá tryggir starfsemi Síldarvinnslunnar, Vísis og tengdra félaga, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Sjóvá.

Fram kemur að í samningnum er lögð áhersla á áframhaldandi samstarf um forvarnir og öryggismál hjá umræddum fyrirtækjum.

Síldarvinnslan hf. er eitt af stærstu sjávaræutvegsfyrirtækjum landsins og er stærst á sviði veiða og vinnslu uppsjávartegunda, auk þess að vera stærstiu framleiðandi fiskimjöls og lýsi á Íslandi.

„Þessi samningur er okkur afar mikilvægur, og ánægjulegt að við séum að ná saman um áframhaldandi tryggingar fyrir Síldarvinnsluna. Sjóvá var auðvitað stofnað í kringum tryggingar í sjávarútvegi og áfram viljum við vera sterk og standa með þessari undirstöðuatvinnugrein okkar Íslendinga. Við hlökkum því til að halda áfram að byggja við þetta farsæla samstarf, sem hefur meðal annars reynst árangursríkt þegar litið er til forvarna,“ segir Hermann.

Þá er í tilkynningunni vakin athygli á því að Sjóvá hefur tengst íslenskum sjávarútvegi sterkum böndum allt frá stofnun Sjóvátryggingafélags Íslands árið 1918. „Sjóvá býður upp á víðtæka tryggingarvernd fyrir fólk og fyrirtæki sem starfa í sjávarútvegi og hefur að auki lagt mikla áherslu á forvarnarstarf og öryggismál í greininni, meðal annars með öflugu samstarfi við fyrirtæki eins og Síldarvinnsluna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.5.24 427,04 kr/kg
Þorskur, slægður 14.5.24 476,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.5.24 259,29 kr/kg
Ýsa, slægð 14.5.24 249,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.5.24 128,64 kr/kg
Ufsi, slægður 14.5.24 132,56 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,37 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.5.24 Sæotur NS 119 Handfæri
Þorskur 629 kg
Ýsa 81 kg
Samtals 710 kg
14.5.24 Högni ÍS 155 Handfæri
Ufsi 33 kg
Karfi 4 kg
Samtals 37 kg
14.5.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 3.430 kg
Þorskur 262 kg
Skarkoli 140 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 3.857 kg
14.5.24 Brattanes NS 123 Handfæri
Ýsa 47 kg
Samtals 47 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.5.24 427,04 kr/kg
Þorskur, slægður 14.5.24 476,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.5.24 259,29 kr/kg
Ýsa, slægð 14.5.24 249,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.5.24 128,64 kr/kg
Ufsi, slægður 14.5.24 132,56 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,37 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.5.24 Sæotur NS 119 Handfæri
Þorskur 629 kg
Ýsa 81 kg
Samtals 710 kg
14.5.24 Högni ÍS 155 Handfæri
Ufsi 33 kg
Karfi 4 kg
Samtals 37 kg
14.5.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 3.430 kg
Þorskur 262 kg
Skarkoli 140 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 3.857 kg
14.5.24 Brattanes NS 123 Handfæri
Ýsa 47 kg
Samtals 47 kg

Skoða allar landanir »