Eitt bílastæði til sölu á 74 milljónir

AFP/John Thys

Það vakti töluverða athygli í Hollandi nýverið þegar bílastæði var auglýst til sölu eða leigu í höfuðborginni Amsterdam fyrir fúlgur fjár.

Auglýst kaupverð bílastæðisins er 495.000 evrur sem samsvarar 74 milljónum íslenskra króna. Auglýst leiguverð á bílastæðinu eru 750 evrur, eða 112.500 íslenskar krónur.

Þetta kom mörgum spánskt fyrir sjónir þar sem meðalverð á húsnæði í Hollandi í fyrra var um 430.000 evrur, eða sem nemur um 65 milljónum króna.

Einstaklega hentugt

Bílastæðið, sem er 18 fermetrar að stærð, er staðsett í P.C. Hoofstraat í nágrenni við Van Gogh-safnið og Rijksmuseum.

Fram kemur í auglýsingu fyrir stæðið að „það sé einstaklega hentugt fyrir stóra bíla og farþegar báðum megin geti stigið auðveldlega úr bílnum“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert