Forsíða |
Innlent | Erlent | Íþróttir | Tækni | Fólk | 200 mílur | Smartland | Matur | | Fjölskyldan | Sporðaköst | Bílar | K100 | Ferðalög | Viðskipti | Blað dagsins
Innlent
Skjálftavirkni í kvikuganginum við Svartsengi hefur verið svipuð í nótt og undanfarna daga og landris heldur áfram.
meira
Í dag verður vestlæg eða breytileg átt og 3 til 10 metrar á sekúndu. Víða verður þurrt og bjart veður, en dálitlar skúrir sunnantil, einkum síðdegis.
meira
Starfsmenn malbikunarverktakans Colas Ísland fræstu og malbikuðu 2,2 km langan kafla á hægri akrein til vesturs á Reykjanesbraut í gær.
meira
Meirihluti þeirra sem sækja hér um hæli er ekki í neyð og er synjað um vernd. Þeir fá engu að síður greitt fyrir að fara aftur til síns heima, flug og sérstaka peningagreiðslu. Það er ekki eðlilegt að brottfararstyrkir geti numið allt að tvöföldum árslaunum í löndum á borð við Venesúela, segir Birgir Þórarinsson alþingismaður í samtali við Morgunblaðið.
meira
Óskað er eftir öflugum sjálboðaliðum til að taka þátt í hreinsunarherferðinni Hreinni Hornstrandir en í sumar verður farið í ellefta sinn í ferð á Hornstrandir til að hreinsa rusl.
meira
Um 15 manns mættu til mótmæla á Keflavíkurflugvelli í kvöld. Samtökin No Borders boðuðu til mótmælanna vegna brottvísunar þriggja nígerska kvenna, Blessing, Mary og Esther.
meira
Dýrasta verkið sem selt var á uppboðinu hjá Gallerí Fold í kvöld fór á 5,2 milljónir króna.
meira
Hin heilaga tala í lífeyrisréttindum fólks hefur gjarnan verið 67 ára aldur. Vissulega fylgja þeim aldri ákveðin réttindi þegar kemur að ellilífeyri. Breytingar á vinnumarkaði og samfélagsgerð hafa leitt til breytinga og fjölgað valkostum lífeyrisþega.
meira
Þegar ljóst er orðið að Halla Tómasdóttir mælist með yfir 10% í könnun Prósents fyrir Morgunblaðið hefur Stefán Einar Stefánsson, stjórnandi Spursmála boðað hana til viðtals. Verður hún gestur þáttarins næstkomandi föstudag.
meira
Ég hef sagt áður að ég telji að það verði áfram sviptingar og mér sýnist það alveg vera að ganga eftir.
meira
Stór hópur Grindvíkinga á samastað sinn í tilverunni í Vogabyggð í Reykjavík. Í stórum klasa nýrra fjölbýlishúsa við Stefnisvog eru alls 75 íbúðir og telst kunnugum svo til að um 50 þeirra séu í útleigu til fólks úr Grindavík.
meira
Samtökin No Borders hafa boðað til mótmæla á Keflavíkurflugvelli í kvöld gegn
brottvísun Blessing, Mary og Esther sem senda á til Nígeríu.
meira
Dómsmálaráðuneytið telur líklegt að bregðast þurfi við því að ekkert verklag sé til um skráningu barna í þjóðskrá, sem fæðast án aðkomu fagfólks, með lagabreytingu. Nefnd hefur verið skipuð til að taka barnalög til endurskoðunar.
meira
Kjörstaðir í Reykjavík fyrir forsetakosningarnar 1. júní eru 25 talsins og verða þeir opnir frá klukkan 9 til 22.
meira
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, var harðorður í garð stjórnvalda þegar hann fjallaði um mál kvennanna þriggja sem vísa á úr landi til Nígeríu á næstu dögum.
meira
Við bræðurnir höfum alltaf verið samrýndir. Sú lýsing þarf kannski ekki að koma á óvart miðað við hvernig málin hafa þróast, segir Leifur Guðjónsson úr Grindavík.
meira
Dagurinn var annasamur hjá áhöfnum björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar í dag.
meira
Lokað hefur verið fyrir vatn í hluta Garðabæjar eftir að kaldavatnslöng fór í sundur síðdegis í dag.
meira
Tilkynnt var um vinnuslys í Kópavogi í dag en þar fékk ungmenni nagla úr naglabyssu í magann og var flutt með sjúkrabifreið á sjúkrahús til skoðunar.
meira
Landsvirkjun tekur þátt í söluferli fyrir langtímavörur, þ.e. grunnorku og mánaðarblokkir, sem Vonarskarð hefur auglýst í maí og í júní.
meira
fleiri