Menn alls staðar varir við loðnu

Helga María AK-16.
Helga María AK-16. Ljósmynd/HB Grandi

„Það gekk ljómandi vel. Við vorum heppnir með veður og fengum ágætan afla í túrnum. Ufsinn gaf sig til og uppistaða aflans er ufsi og svo erum við með tegundir eins og þorsk og karfa,“ segir Heimir Guðbjörnsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Helgu Maríu AK.

„Við byrjuðum túrinn efst í Skerjadjúpinu og þar fengum við ufsa. Næst lá leiðin á Fjöllin og þar var ufsi í takmörkuðu magni í bland við karfa. Við fórum svo í Víkurálinn og lukum við að taka karfaskammtinn en þar var einnig ufsi. Við fylgdum síðan kantinum norðaustur eftir og fengum ágætan þorskafla.“

Haft er eftir Heimi á vef HB Granda að það hafi fyrst verið þegar komið var norður á Þverálshornið að ufsaveiðin hafi glæðst fyrir alvöru. Er rætt var við hann í dag var togarinn staddur úti af Dýrafirði, á leið til Reykjavíkur með tæplega 170 tonna afla.

Hefja löndun klukkan sex í fyrramálið

„Við fengum fína ufsaveiði á Þverálshorninu og í gær og í nótt kom bara ufsi í trollið. Þetta var allt saman fínasti ufsi eða um tvö kíló að jafnaði og það var ekki fyrr en í morgun að það tók að bera á þorski sem meðafla. Hann var þó ekki meiri en svo að að hann passaði nákvæmlega upp á þau tæplega fjögur tonn sem okkur vantaði til að ná þorskskammti veiðiferðarinnar,“ segir Heimir en í máli hans kemur fram að alls staðar á Vestfjarðamiðum verði menn varir við loðnu. Hún sé ýmist ánetjuð í trollpokanum eða þá vart verði við hana í fisknum sem þarna veiðist.

Heimir segist búast við því að koma til Reykjavíkur seint í nótt en áformað er að hefja löndun klukkan sex í fyrramálið. Gangi það eftir verður togarinn klár fyrir næstu veiðiferð í hádeginu á föstudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »