Leggur til rækjuveiðar í Arnarfirði að nýju

Lítið fannst af rækju í Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda og Öxarfirði.
Lítið fannst af rækju í Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda og Öxarfirði. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Hafrannsóknastofnun leggur til að leyfðar verði veiðar á 139 tonnum af rækju í Arnarfirði og 456 tonnum í Ísafjarðardjúpi, á vertíðinni 2018/2019. Rækjuveiðar voru ekki leyfðar í Arnarfirði á síðustu vertíð þar sem stofnvísitala rækju var undir varúðarmörkum, en ráðgjöfin nú kemur í kjölfar könnunar á ástandi stofnanna sem gerð var dagana 6.-25. október.

Í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun segir að lítið hafi fundist af rækju í Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda og Öxarfirði. Því leggi stofnunin ekki til aflamark rækju á þessum svæðum fyrir fiskveiðiárið.

Stofnvísitala rækju í Arnarfirði hafi þá verið nálægt sögulegu lágmarki og rétt yfir skilgreindum varúðarmörkum. Rækja hafi eingöngu fundist í Borgarfirði og verið smærri en undanfarin ár. 

Fram kemur að mikið hafi verið af þorskseiðum í Ísafjarðardjúpi. Stofnunin leggur því til að veiðieftirlitsmaður frá Fiskistofu fylgist náið með upphafi rækjuveiða í Ísafjarðardjúpi og að viðkomandi veiðisvæði verði lokað ef meðafli seiða í rækjuafla fari yfir viðmiðunarmörk.

Bent er á að stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi hafi verið undir meðallagi en yfir skilgreindum varúðarmörkum. Útbreiðsla rækjunnar hafi verið að miklu leyti takmörkuð við svæðið innst í Ísafjarðardjúpi en einnig fundist í Útdjúpinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »