Hefja flutningasiglingar frá Bíldudal

Skálafell, skip Samskipa, kom í sína fyrstu ferð til Bíldudals …
Skálafell, skip Samskipa, kom í sína fyrstu ferð til Bíldudals í gær. Ljósmynd/Samskip

Samskip og Arnarlax hafa skrifað undir samstarfssamning um að Samskip annist útflutning á afurðum Arnarlax frá Bíldudal og innflutning á aðföngum fyrir fyrirtækið. Siglingarnar hófust í gær, þegar Skálafell kom í sína fyrstu ferð til Bíldudals. Langt er um liðið síðan þaðan hafa verið beinar millilandasiglingar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samskipum, en samkvæmt henni mun flutningur fyrir Arnarlax fara inn á svonefnda Suðurleið í nýju siglingakerfi fyrirtækisins.

Flutningaskip Samskipa muni þar með hafa vikulega viðkomu á Bíldudal á miðvikudögum. Þaðan verði siglt um Reykjavík og komið til Hull í Bretlandi á sunnudögum. Þaðan verði svo siglt áfram til Rotterdam og komið þangað á mánudegi.

Binda miklar vonir við nýju þjónustuna

Suðurleið Samskipa er sögð falla vel að þörfum Arnarlax og annarra sem flytja vilja ferskar afurðir til og frá Bretlandi og meginlandi Evrópu.

„Við bindum miklar vonir við þessa nýju þjónustu sem við getum nú boðið útflytjendum á ferskum fiski,“ er haft eftir Birki Hólm Guðnasyni, forstjóra Samskipa á Íslandi.

„Við fögnum því sérstaklega að fá Arnarlax í viðskipti og að geta nú boðið fyrirtækjum á Vestfjörðum afburðatengingu við mikilvæga markaði í Evrópu og þaðan áfram um allan heim í viku hverri.“

Fersk vara á kröfuharða markaði

Kristian Matthíasson, forstjóri Arnarlax, segir samninginn mikilvægan þátt í áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins.

„Við afhendum ferska hágæðavöru inn á kröfuharða markaði og erum þar að keppa við fyrirtæki sem eru stærri og nær markaðnum. Þá er gríðarlega mikilvægt að flutningsleiðin sé bæði örugg, fagleg og hagkvæm.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »