Valka með samning upp á 1,3 milljarða

Höfnin í Múrmansk. Fyrirtækið Valka hefur samið við Murman Seafood …
Höfnin í Múrmansk. Fyrirtækið Valka hefur samið við Murman Seafood um hönnun og uppsetningu á nýrri hátæknifiskvinnslu í borginni Kola í Múrmansk í Rússlandi. Ljósmynd/Aðsend

Fyrirtækið Valka hefur samið við Murman Seafood um hönnun og uppsetningu á nýrri hátæknifiskvinnslu í borginni Kola í Múrmansk í Rússlandi. Er fiskvinnslan sú fyrsta sinnar tegundar í landinu og verður tæknilegasta bolfiskvinnslan í Rússlandi að uppsetningu lokinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Völku. 

Valka mun hafa yfirumsjón með verkefninu, en fleiri tækjaframleiðendur koma þó að uppsetningu vinnslunnar, og hljóðar heildarsamningurinn upp á 1,3 milljarða króna.

„Það hefur verið mjög ánægjulegt að vinna að undirbúningi að þessu metnaðarfulla verkefni með Murman Seafood. Þetta er fyrsta verkefni þessarar tegundar hjá Völku og stefnum við að því að þróa starfsemi okkar enn frekar í þessa átt,“ er haft eftir Helga Hjálmarssyni, framkvæmdastjóra Völku.

Vinnsluhúsið verður byggt frá grunni og verður búið nýjustu tækni …
Vinnsluhúsið verður byggt frá grunni og verður búið nýjustu tækni og tækjum, en þeirra á meðal eru sjálfvirkar beina- og bitaskurðvélar frá Völku. Ljósmynd/Aðsend

Murman Seafood gerir út sex frystitogara og er meðal þeirra fyrirtækja sem fékk úthlutað viðbótarkvóta hjá rússneskum yfirvöldum gegn því að fjárfesta í landvinnslu. Vinnsluhúsið verður  byggt frá grunni og verður búið nýjustu tækni og tækjum, en þeirra á meðal eru sjálfvirkar beina- og bitaskurðavélar frá Völku. Mun nýja vinnslukerfið gera fyrirtækinu kleift að hámarka verðmæti þeirra 50 tonna af hráefni sem áætlað er að vinna í nýju vinnslunni á degi hverjum, en fram að þessu hefur hráefnið að mestu leyti verið selt heilfryst.

Verkefnið hefur verið í undirbúningi í rúmlega eitt ár og er gangsetning áætluð síðla sumars 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 472,04 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 397,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 365,11 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 230,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,57 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 608,07 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Beta SU 161 Handfæri
Þorskur 439 kg
Ufsi 116 kg
Samtals 555 kg
22.7.24 Halldór NS 302 Handfæri
Þorskur 1.879 kg
Samtals 1.879 kg
22.7.24 Tóki ST 100 Handfæri
Þorskur 159 kg
Ufsi 13 kg
Karfi 13 kg
Samtals 185 kg
22.7.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Ufsi 606 kg
Þorskur 349 kg
Karfi 264 kg
Samtals 1.219 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 472,04 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 397,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 365,11 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 230,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,57 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 608,07 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Beta SU 161 Handfæri
Þorskur 439 kg
Ufsi 116 kg
Samtals 555 kg
22.7.24 Halldór NS 302 Handfæri
Þorskur 1.879 kg
Samtals 1.879 kg
22.7.24 Tóki ST 100 Handfæri
Þorskur 159 kg
Ufsi 13 kg
Karfi 13 kg
Samtals 185 kg
22.7.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Ufsi 606 kg
Þorskur 349 kg
Karfi 264 kg
Samtals 1.219 kg

Skoða allar landanir »