Skutu 70 fallbyssuskotum að tveimur fiskikörum

Skotið úr fallbyssunni á varðskipinu Þór á meðan æfingu stóð …
Skotið úr fallbyssunni á varðskipinu Þór á meðan æfingu stóð 10 sjómílur norðvestur af Straumsnesi. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Áhöfnin á varðskipinu Þór dustaði rykið af fallbyssu skipsins á dögunum. Tilgangurinn var hins vegar ekki að aðvara landhelgisbrjóta í lögsögunni heldur viðhalda kunnáttu áhafnarinnar, segir á vef Landhelgisgæslunnar.

Fram kemur að haldin hafi verið fallbyssuæfing þegar varðskipið Þór var statt 10 sjómílur norðvestur af Straumnesi. Þar fengu 10 skyttur að æfa sig og skutu samtals 70 skotum að tveimur fiskikörum sem bundin voru saman og voru í um 200 til 300 metra fjarlægð. Sagt er frá því að áhöfninni hafi tekist vel að hitta í mark, en það sést vel á myndbandi sem landhelgisgæslan hefur birt.

„Sem betur fer er það nær óþekkt, að minnsta kosti í seinni tíð, að áhafnir varðskipa Landhelgisgæslunnar þurfi að grípa til vopna og þar af leiðandi eru fallbyssur skipanna ekki mikið notaðar. Nú til dags gerist það einkum við hátíðleg tilefni en þá er skotum gjarnan hleypt af fallbyssunni í heiðursskyni. Á árum áður voru fallbyssur meðal annars notaðar til að skjóta púðurskotum að skipum sem svöruðu ekki kalli. Ef menn létu sér ekki segjast gátu þeir átt von á að fá fallbyssukúlu í skipið. Fallbyssur voru lítið notaðar í þorskastríðunum en þó kom það fyrir,“ segir í færslu Landhelgisgæslunnar.

Fræg tegund

Fallbyssan sem um er að ræða er af sænskri gerð og er meðal frægustu í heimi eða Bofors L60 með 40 millimetra hlaupvídd. Fyrsta tegund þessarar fallbyssu fór í framleiðslu árið 1934 og var fyrst hugsuð til þess að beita gegn flugvélum. Ýmsum útfærslum af Bofors L60 hefur meðal annars verið komið fyrir í skipum, á brynvörðum bílum og í flugvélum.

Þá segir á vef gæslunnar að það þurfi þrjá til að skjóta af byssunni þar sem hún er handvirk. „Sömuleiðis þarf vökult auga stjórnanda í brú sem veitir upplýsingar um fjarlægð og stefnu á skotmarkið auk þess að gefa fyrirmæli um hvenær hleypt skuli af fallbyssunni.“

Ljósmynd/Landhelgisgæslan
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg
24.7.24 Kolga BA 70 Handfæri
Ufsi 5.813 kg
Karfi 191 kg
Langa 106 kg
Samtals 6.110 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 541,59 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 350,17 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.7.24 Eydís NS 320 Handfæri
Þorskur 680 kg
Samtals 680 kg
24.7.24 Axel NS 15 Handfæri
Þorskur 2.038 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.046 kg
24.7.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 668 kg
Samtals 1.931 kg
24.7.24 Vonin NS 41 Handfæri
Ufsi 511 kg
Þorskur 42 kg
Karfi 13 kg
Samtals 566 kg
24.7.24 Kolga BA 70 Handfæri
Ufsi 5.813 kg
Karfi 191 kg
Langa 106 kg
Samtals 6.110 kg

Skoða allar landanir »