„Haldið nauðugum og veikum við vinnu“

Meirihluti 25 manna áhafnar Júlíusar Geirmundssonar hafði smitast af kórónuveirunni.
Meirihluti 25 manna áhafnar Júlíusar Geirmundssonar hafði smitast af kórónuveirunni. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Frásagnir skipverja á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni bera það með sér að ástandið um borð, í veiðiferð þar sem Covid-19 einkenni fóru að gera vart við sig á meðal skipverja, hafi verið mjög alvarlegt og skipverjar margir hverjir verið alvarlega veikir með mikinn hita, öndunarörðuleika ásamt fleiri þekktum Covid einkennum, að sögn Verkalýðsfélags Vestfirðinga.

Á þriðja tug skipverja sóttu fund Verkalýðsfélags Vestfirðinga og skipverja af Júlíusi Geirmundssyni. Um var að ræða bæði staðfund og fjarfund enda þó nokkrir skipverjar veikir af Covid-19 og aðrir í sóttkví vegna smita á skipinu. 

Um­dæm­is­lækn­ir sótt­varna á Vest­fjörðum óskaði eft­ir því að frysti­tog­ar­an­um yrði snúið til hafn­ar þegar grun­ur vaknaði um kór­ónu­veiru­smit um borð. Þessi beiðni var ít­rekuð en út­gerðarfyr­ir­tækið Hraðfrysti­húsið Gunn­vör hafnaði þess­um beiðnum.

„Þrátt fyrir þessu skýru einkenni um sýkingu töldu hvorki útgerð né skipstjóri ástæðu til að tilkynna um veikindin til sóttvarnaryfirvalda eða Landhelgisgæslu eða halda skipi til hafnar þannig að hægt væri að framkvæma sýnatöku og koma í veg fyrir frekari smit um borð,“ segir í tilkynningu á vef verkalýðsfélagsins. 

Hver er að ljúga að okkur? spyrja skipverjar og vísa til þess að umdæmislæknir sóttvarna hafði lýst yfir að hann vildi fá skipverja í sýnatöku á þriðja degi veiðiferðar. En það er á skjön við það sem kom fram í Kastljósviðtali við sóttvarnarlækni í gær þar sem sóttvarnalæknir sagði að ekkert hafi bent til þess að um hópsmit væri að ræða. Allt frá öðrum degi veiðiferðar hafi skipstjórinn skipað mönnum í einangrun meðan þeir voru sem veikastir. Meðan skipverji var í einangrun þurfti klefafélagi hans að búa við það að sofa í sjónvarpsklefa án aðgangs að persónulegum munum sínum, s.s. hreinum fatnaði o.fl.“

„Bannað að ræða veikindin út á við“

Verkalýðsfélag Vestfirðinga segir að aðstæður skipverja hafi verið „vægast sagt skelfilegar þar sem þeir veiktust einn af öðrum og höfðu ekki aðrar bjargir en verkjalyf til að halda sér gangandi þar sem skipið var við veiðar og vinnslan í gangi. Síðar kom í ljós að lyfjabirgðir voru ekki nægar og þurfti þá að handvelja úr hverjir væru veikastir og þyrftu mest á verkjalyfjum að halda.“

Verkalýðsfélagið sakar útgerðina og/eða skipstjórann um skeytingarleysi  gagnvart heilsu og öryggi skipverja í umræddri veiðiferð.

„Skipverjum var bannað að ræða veikindin út á við en máttu ræða við fjölskyldur. Ítrekað var að ræða ekki veikindin og á 3ju viku sjóferðar var sett á algert bann við að minnast á veikindin á samfélagsmiðlum eða við fréttamenn. Þannig var skipverjum haldið nauðugum og veikum við vinnu út á sjó, í brælu og lélegu fiskeríi á meðan Covid sýking herjaði á áhöfnina.“

Næstu skref verkalýðsfélagsins eru að leita samstarfs við önnur stéttarfélög sjómanna um borð í Júlíusi Geirmundssyni.

„Allir áhafnarmeðlimir í Verk Vest hafa ákveðið að fela félaginu umboð til að fara með sín mál er varða réttindi- og launamál. Þá hefur félagið fregnir af því að landað verði úr skipinu á morgun án þess að sótthreinsun á skipinu hafi farið fram.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »