Fyrirtækið mun axla ábyrgð

Meirihluti áhafnar Júlíusar Geirmundssonar smitaðist af Covid-19 um borð.
Meirihluti áhafnar Júlíusar Geirmundssonar smitaðist af Covid-19 um borð. mbl.is/Halldór Sveinbjörsson

Stjórnendur Hraðfrystihússins-Gunnvarar telur að rétt hefði verið að tilkynna grun um kórónuveiru þegar smit kom upp í togaranum Júlíusi Geirmundssyni. „Því miður fórst það fyrir og ábyrgð á þeim mistökum mun fyrirtækið að sjálfsögðu axla. Fyrirtækið biður hlutaðeigandi jafnframt einlæglega afsökunar á þessum mistökum.“

Þetta kemur fram í yfirlýsingu Hraðfrystihússins-Gunnvarar vegna hópsmits um borð í Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270.

„Í ljósi þeirra frétta sem birst hafa liðna daga um hópsmit skipverja um borð í Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 vill Hraðfrystihúsið-Gunnvör koma á framfæri eftirfarandi:

„Fyrirtækið telur ljóst, líkt og áður hefur komið fram í fyrri yfirlýsingu, að rétt hefði verið að tilkynna grun um kórónuveiru um borð í skipinu til Landhelgisgæslunnar og láta þeim yfirvöldum eftir að meta hvort rétt væri að sigla skipinu til hafnar. Slík framkvæmd hefði enda verið í samræmi við þær leiðbeiningar, sem viðhafa ber í þessum aðstæðum, og SFS og stéttarfélög sjómanna komu sér saman um við upphaf kórónuveirufaraldursins. Því miður fórst það fyrir og ábyrgð á þeim mistökum mun fyrirtækið að sjálfsögðu axla. Fyrirtækið biður hlutaðeigandi jafnframt einlæglega afsökunar á þessum mistökum.

Það var aldrei ætlun útgerðar eða skipstjóra að stefna heilsu og lífi áhafnar skipsins í hættu og fyrirtækinu þykir þungbært að sitja undir ásökunum um að ekki sé hugað nógu vel að heilsu og öryggi starfsmanna. Ítrekað skal að fyrirtækinu þykir miður að ekki hafi verið brugðist við með réttum og viðeigandi hætti. Nú er verkefnið að styðja við þá áfhafnarmeðlimi sem glíma við veikindi og byggja upp á ný það traust sem hefur glatast á milli áhafnar og fyrirtækisins vegna atviksins,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »